logo

Morgunverður fyrir húðina

27 janúar 2012 - Heiða Þórðar

Þessi yndislegi morgunverður fyrir andlit og háls, skilur húð þína eftir silkimjúka og stinna á morgnana. Þessi uppskrift er fyrir nokkrar meðferðir, þannig að sniðugt er að sameinast með vinkonunum að morgni og splæsa í dekur og smá spjall. 

Það sem til þarf er einfaldlega: 
 
1 bolli haframjöl
2 matskeiðar hunang
2 teskeiðar sykur
1/2 bolli mjólk
1 - 2 dropar af uppáhalds olíunni þinni (lavander fyrir þurra til normal húð og sítrónu olíu fyrir feita húð) 

Byrjaðu á að setja haframjölið og sykurinn í skál, blandaðu vel. Settu loks hunangið út í og vertu viss um að hunangið blandist vel haframjölinu og sykrinum áður en þú heldur áfram.

Bættu mjólkinni saman við smátt og smátt og hrærðu vel á milli. Passa verður að setja ekki of mikla mjólk í einu, þá verður maskinn of ,,blautur". Maskinn á að vera þykkur þannig að hann haldist á andlitinu. 

Settu olíuna saman við og blandaðu enn og aftur vel. Þegar maskinn er tilbúinn og laus við kekki er hann settur í ísskáp í minnst 5 mínútur. 

Berðu þykkt lag á andlit (passaðu augun) og háls og slakaðu á í minnst 30 mínútur.  

Hreinsaðu maskann af með volgu vatni og hreinum klút og berðu á húðina gott rakagefandi krem. Dagurinn getur ekki klikkað. 

heida@spegill.is

 
Höfundur: Heiða Þórðar
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho

Ritstýrur