logo

High intensity interval training

28 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Þegar kemur að nýjungum er ég sú fyrsta til að forvitnast. Ég leita eftir upplýsingum úr öllum áttum og því fleiri áttir sem þær berast frá því betri vitneskju öðlast ég.
Ég hafði samband við dömu með óendanlega vitneskju um þessa tegund þjálfunar. Upplýsingar sem eru þess verðugar að hlusta á og fara eftir. Mæli eindregið með því.
 
 
 
Ljósmyndari: Arnold Björnsson
Förðun: Kristín Sæbergsdóttir
 
 
 
Edda Ósk er ÍAK einkaþjálfari og lifir fyrir það eitt að halda sjálfri sér í formi og koma öðrum í form. Hún hefur í gegnum tíðina tekið þátt í hinum ýmsu keppnum sem snúa að heilbrigði og hreysti. Hún hefur stundað kraftlyftingar og keppt fyrir hönd Breiðabliks innan þeirrar greinar og auk þess tekið þátt í keppninni um sterkustu konu Íslands. Hún er viðskiptafræðingur að mennt en snerist hugur við lok B.S. gráðu og fór aftur á skólabekk við krefjandi og ítarlegt ÍAK einkaþjálfaranám hjá Keili.
 
Ævintýri og breytingar til hins betra er það sem lýsir þessari dömu. Fyrir nokkru síðan flutti hún til Akureyrar ásamt börnum sínum til að fylgja starfi sínu eftir ásamt því að hefja þjálfun hjá HIIT FIT Akureyri og Víking Gym á Akureyri. Edda Ósk tekur að sér ýmis verkefni sem eru sniðin að þörfum viðskiptavinar hverju sinni. Hvort sem um er að ræða hóp-, einka- eða fjarþjálfun. Hún gerir allt í sínu valdi til að aðstoða viðskiptavin til að ná því fram sem óskað er eftir. Hún er hörð og veit hvað þarf til þess að umbreyta lífsstíl og líkama til hins betra. Getur viðskiptavinur beðið um meira frá þjálfara? Ég hugsa ekki.
 
Hins vegar vil ég snúa mér að HIIT FIT þálfun. Þetta segir Edda Ósk:
 
Þetta er nýjung sem er klárlega þess verðug að kynna sér. Þú getur sagt skilið við brennsluna á hlaupabrettinu eða stigaþjálfanum. Stigmagnað og aukið grunnbrennslu líkamans svo um munar á alla vegu. Eftirbrennsla sem fylgir þér langt áfram inn í daginn. Hver vill það ekki.
 
HIIT eða High Intensity Interval Training er án efa með betri brennsluaðferðum sem til eru. Hún slær auðveldlega út þjálfun á litlu álagi í langan tíma (steady state cardio). HIIT er æfingaraðferð sem byggir á hugmyndafræðinni um breytilegt álag, þannig að tekinn er t.d. sprettur í eina mínútu, labbað eða skokkað í eina mínútu og þetta svo endurtekið nokkrum sinnum.
 
Ástæðan fyrir því að þessi aðferð er svona áhrifarík er að hún keyrir upp grunnbrennslu líkamans næstu 24 tímana og virðist minnka matarlyst meira heldur en stöðug þjálfun gerir að staðaldri.

Sú aðferð sem ég þjálfa öllu jöfnu byggist á öflugri stöðvaþjálfun. Þetta er kerfi með völdum æfingum til að byggja upp líkamann og brenna fitu svo um munar. Mikil ákefð hverju sinni. Það er aðferð sem allir þurfa að beita til að hámarka árangurinn.

Það eru að fara af stað ný námskeið hjá okkur hjá HIIT FIT Akureyri sem byrja þann sjötta febrúar. Mikið af tímum sem henta öllum, konum og körlum, ungum sem og öldnum. Við erum nokkur sem kennum þetta og er mikil samvinna okkar á milli. Frábært teymi með frábæra tíma.
 
Ég hvet alla til þess að koma á námskeið til okkar og einnig þá sem eiga leið hjá Akureyri að koma til okkar og prófa, þetta er þjálfun sem svíkur engan sem hana velur. Við erum að sjálfsögðu með fría prufutíma fyrir þá sem vilja og eru þeir á fimmtudögum 17.00. Allir ávallt velkomnir til okkar.
 
Að lokum sendi Edda Ósk okkur uppskrift sem er í uppáhaldi hjá henni og vonum við að allir lesendur okkar á Speglinum nýti sér hana til að öðlast betri næringu.
 
Múslí
Tröllahafrar
Sólblómafræ
Sesamfræ
Möndluflögur
Olía
Fljótandi hungang
 
Allt nema hunangið er sett á bökunarpappír í ofnskúffu og smá olíu dreift yfir, alls ekki mikið. Hunangi er dreift yfir líka. Sett inn í 210°C heitan ofn í 10 mínútur og snúið af og til. Tekið út og aðeins meira hunangi bætt yfir og látið kólna alveg í ofnskúffunni.
 
Ljúffengt og hollt að strá yfir Ab-mjólkina.
 
Fullkomin byrjun á fullkomnum degi, þar sem örlögin eru í höndum þér!
 
Við hjá Speglinum sendum kveðjur norður og óskum Eddu Ósk og fjölskyldu góðs gengis í öllu því sem að þeim kemur.
 
Heilsukveðjur E.B.I.E
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur