logo

Hvað á að gera um helgina?

28 janúar 2012 - Heiða Þórðar

Þá er Helgi, blessaður mættur á svæðið eina ferðina enn. Skemmtilegur þessi Helgi. Getur verið vandasamur stundum þegar maður hugsar til þess hvernig á að ,,eyða" honum...öllu heldur, eyða honum vel. 
 
Hér á eftir koma 10 hugmyndir um hvað er hægt að gera um helgina, vonandi finnur þú eitthvað við hæfi. 
 

Það þarf ekki að kosta fót, fingur og arm að gera sér glaðan dag. Gerðu það samt endilega ef þú átt nóg aflögu. En hér er eitthvað sem er fremur budduvænt: 
 
Kíktu í Kolaportið, skilst að það loki innan skamms. Þar mætast margir ólíkir menningarheimar og húsið er hreinlega stappað af dóti sem gaman er að gramsa í...skítt með fýluna þarna inni. Ísinn er ágætur og kostar klink og kúk...
 
 
 
Svipmynd úr Kolaportinu. 
 
 
Farðu í góðan göngutúr með öllum í þínu liði. Öskjuhlíðin þessa dagana er hreint út sagt ómótstæðileg, flott að stoppa í Perlunni í bakaleiðinni, kíkja á safnið þeirra og fá sér heitt kakó...með rjóma. 
 
 
Öskjuhlíðin að vetrarlagi.
 
 
Ekki vantar fjölbreytnina í kaffihúsaflóruna í höfuðborginni og annarsstaðar. Láttu það eftir þér að setjast inn á þitt allra uppáhalds. Grunar að þú eigir það skilið...
 

 
Ilmandi kaffibolli stútfullur af kærleik.
  
Íslensk myndlist blómstar sem aldrei fyrr. Kíktu á sýningu. Þær eru víðsvegar um bæinn. M.a. í Listhúsinu við Tryggvagötu, á Suðurgötu, Kjarvalsstöðum og víða.
 
 
Mynd af sýningu.
 
Bláa Lónið er hreint út sagt æðislegt á þessum árstíma, skelltu þér í lónið og slakaðu á. Farðu á kaffihúsið þeirra, fínustu veitingar hjá þeim. 
 
 
 
Bláa Lónið að vetrarlagi.
 
Því ekki að taka rúnt fyrir bæjarmörkin og freista þess að sjá Norðurljósin? Enginn trygging hvort þú sjáir ljós eður ei. Þú keyrir annaðhvort suður, austur, vestur eða norður. Og nýtur félagskaparins, sem er væntanlega góður fyrir þig. 
 
 
Mögnuð Norðuljós.
 
Nóg er til af hráefninu þessa stundina. Nýttu þér það og skelltu þér út í garð að búa til flottan snjókarl með krökkunum...og kannski engil líka.
 
 
Stoltir og kátir krakkar .
 
Að labba um miðbæinn og virða fyrir sér mannlífið um leið og maður sýnir sig, er hin mesta skemmtun. Kíkja í einn og einn búðarglugga, það eru einhverjir eftir...
 
 
Laugavegurinn. 
 
Hvernig væri að skella sér í leikhús? Nóg er í boði bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu ásamt öllu því sem er að gerast í ,,minni" leikhúsunum...kynntu þér málið.
 
 
Leikhússalur.
 
 
Hvað svo sem þú gerir þessa helgina, vona ég að þú njótir hennar vel. 
 
heida@spegill,is
Höfundur: Heiða Þórðar
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho

Ritstýrur