Íslensk listaverk til leigu
29 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Ég fór um síðastliðna helgi á uppáhalds djammrúntinn minn. Byrjaði á Listhúsinu og endaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur.
En bókasafnið við Tryggvagötu er uppáhalds skemmtistaðurinn minn, þrátt fyrir að kaffið þar geri ekki mikið fyrir mig.
Íslensk myndlist blómstrar sem aldrei fyrr og bíður Borgarbókasafnið, öllu heldur Artótek til leigu og sölu myndlist og verk eftir íslenska myndlistarmenn.
Leigan er frá 1.000-10.000 kr. á mánuði. Listaverkin má leigja þar til þau eru að fullu greidd eða ljúka greiðslu fyrr og dregst þá frá áður greidd leiga.
Listaverkin eru eftir félagsmenn í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og eru til sýnis á 1. hæð í Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, Reykjavík.
Titill: Gjálfur
Nr: 1112016
Höfundur: Sigrid Valtingojer
Ártal:
Efni/tækni: Trérista
Stærð: 70 x 55 cm
Tegund: Grafík
Verð: 120.000 kr.
Leiguverð: 4.000 kr.

Titill: Þríund
Nr: 1111035
Höfundur: Hulda Hlín Magnúsdóttir
Ártal: 2011
Efni/tækni: Olíupastel
Stærð: 12 x 17 cm
Tegund: Vatnslitir, pastel og gvass
Verð: 20.000 kr.
Leiguverð: 1.000 kr.

Titill: Í grænu
Nr: 1112015
Höfundur: Rut Rebekka Sigurjónsdóttir
Ártal: 2008
Efni/tækni: Olía á striga
Stærð: 30 x 80 cm
Tegund: Málverk
Verð: 150.000 kr.
Leiguverð: 5.000 kr.

Titill: Alda
Nr: 1112004
Höfundur: Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
Ártal: 2010
Efni/tækni: Olía á striga
Stærð: 30 x 40 cm
Tegund: Málverk
Verð: 80.000 kr.
Leiguverð: 3.000 kr.
Endilega kíkið á myndir og frekari upplýsingar hérna.
heida@spegill,is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





