logo

Tangó

Hún liggur í sófanum, augun aftur. Syngur með lagi. Hálsfesti liggur fínleg milli brjóstanna, slétt hárið liðast yfir barminn og pilsið lafir niður á gólf. Það er dimmt.
  
Þau tala sjaldan saman, þannig. Nota annað tungumál. Það má lesa taugar. Lesa augun, finna orðin í vörunum þegar þær kyssa. Vita að undir húðinni liggja þær þessar tilfinningar og brjótast út með svitanum. Kalla á hroll. Þær eru settar í bremsu gegnum röddina. Af hverju? Af því bara.
 
 
Hún er hætt að hika eitt einasta andartak. Eltir löngunina langar leiðir. Tekur áhættu. Hvað ef hún gefur sig stíflan? Bremsurnar bila? Ef hún stendur keik og krafsar aðeins í hann. Klappar hjartanu. Kyssir taugarnar með votum vörum. Og kveikir ljós í spegli sálarinnar? Hvað ef röddin brýtur sér leið?
  
...hann kemur til hennar, brosir en bara til hálfs. Hún hreyfir sig ekki, hann á leik. Hann kemur nær, tyllir sér klofvega yfir hana í sófanum. Brjóstin snerta bringuna þegar hann beygir sig nær.
 
Kossinn er mjúkur þegar varirnar mætast. Kropparnir þrýsta sér nær. Hendur strjúka háls og niður brjóstin. Taka um mittið og leita niður mjaðmirnar. Hann lyftir pilsinu upp úr gólfinu. Þrýstir sér að. Alla leið. Og fætur hennar krækjast um mjaðmirnar. Dans ástríðunnar.
 
Kossar og gælur tala hátt en segja ekki orð. Ekki upphátt. Það er meira en bara kynlíf, þegar þú ert hluti af mér. Við föst saman er allt sem ég vil. Ekki bremsa...fljúgum fram af klettinum.
 
Dönsum tangó á leiðinni niður.
 
 
steina@spegill.is
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur