The Iron lady -kvikmyndahús
30 janúar 2012 - Heiða Þórðar


THE IRON LADY er sönn saga um Margaret Thatcher (Streep), en hún var fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Bretlands. Hún er ein frægasta og áhrifamesta kona tuttugustu aldarinnar. Hún þurfti að brjóta niður margar hindranir til að hefja upp raust sína í karllægu stjórnmálaumhverfi.
Leikstjóri: Phyllida Lloyd
Handrit: Abi Morgan
Leikarar: Meryl Streep, Jim Broadbent & Richard E. Grant
Tegund - Drama
Lengd 105 min
Frumsýnd 13. janúar sl.
Ég skellti mér í bíó á dögunum og sá þessa mynd. Ég var ekki svikin, enda fantagóður leikur og fróðleg saga. Að auki er M. Streep mín uppáhalds leikkona og hefur verið um árabil. Örlítið þung mynd en fróðleg.
Í þessari mynd leikstýrunnar Phillydu Lloyd er farið yfir sögu Margaretar Thatcher og reynt að varpa ljósi á bakgrunn hennar, leiðina í stól forsætisráðherra Bretlands þar sem hún sat frá 1979 til 1990, baráttu hennar fyrir bættum kjörum kvenna við karlaveldi breska þingsins og endalausan metnaðinn sem hún bar í brjósti fyrir hönd bresku þjóðarinnar. Þess utan er skyggnst á bak við tjöldin því Margaret var ekki bara ein áhrifamesta kona heims heldur einnig móðir, húsmóðir og eiginkona.
Mér fannst myndin fróðleg, frekar þung, en hrikalega vel leikin.
Hér að neðan getur að líta sýnishorn úr myndinni:
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





