Gott kynlíf -betra útlit!
31 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Við konur eyðum flestar fleiri þúsundum króna í allskyns krem, snyrtivörur og fatnað til að líta betur út.
Heilbrigt kynlíf með þeim sem þú elskar gerir samt stórt kraftaverk. Móðir Náttúra sér um að gefa konum glóandi og yngra útlit, með kynlífi sem að sama skapi eykur blóðflæði og veitir aukna hamingju.
Náttúrulegur farði með kynlífi
.jpg)
Náttúruleg fegurð
Á hverjum morgni setjum við flestar á okkur snyrtivörur og þegar kemur að hádegisverðinum, þá er tími til kominn að flikka upp á útlitið. En ef þú eyðir 15 mínútum að morgni í unaðslega stund með makanum, mun húð þín glóa það sem eftir lifir dags. Kinnarnar munu vera náttúrulega rjóðar og varirnar einnig.
Farðu vel með húðina þína

Passaðu húðina
Þrátt fyrir að þú haldir þig frá sólinni, þá getur húð þín elst engu að síður. Hrukkur myndast ef blóðflæðið til húðarinnar er ekki nægilegt. Með reglulegri ástundun kynlífs eykur þú blóðstreymið og heldur þér unglegri fyrir vikið.
Góð og skemmtileg líkamsrækt

Morgunstund gefur gull í mund
Það getur verið erfitt að drífa sig af stað í ræktina. Því ekki að gera nokkrar leikfimiæfingar með makanum? Gott kynlíf að morgni mun vera álíka áhrifaríkt og einn Zumba tímí. Því meira sem þú ástundar kynlíf, því betri útkoma og ánægja.
Náttúrulegt og heilbrigt hár

Úfin og falleg
Kynlíf getur einnig stuðlað að heilbrigðu hári. Hver einasta hár hefur "blóðvessa" en aukning á slíkum vessum fæst að mestu við hreyfingu. Því meira blóðflæði, því meira nærir þú hárið þitt.
Engar áhyggjur -bara aukin hamingja
Hamingja og gleði
Það eru nokkrar ástæður fyrir því að hrukkur eru kallaðar áhyggjuhrukkur. Rándýr augnkrem hafa ekkert að segja, ef þú nærð ekki að slaka á. Gott kynlíf er afar stresslosandi og fullnægingin um leið slakandi. Ráðlagður "dagskammtur" af kynlífi, eru í kringum 20 mínútur. Það hljóta allir að geta fundið sér þann tíma.
Gott kynlíf kemur í veg fyrir ýmsa sjúkdóma

Á meðan á kynlífi stendur verða brjóstin þrýstnari um að allt að 25%.
Með ástundun reglulegs kynlífs er sagt að konan líti út fyrir að vera minnst átta árum yngri en hún er í raun. Ekki verður aðeins húðin og hárið fallegra og unglegra, heldur lýsir útgeislunin öll af heilbrigði og hamingju. Einnig mun gott kynlíf minnka hættuna á þunglyndi, hjartaáföllum, krabbameini og auðvitað almennri fýlu og þunga.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





