logo

Matarinnkaup

Matvöruverslanir eru oft með nokkra verðflokka af sams konar vöru, jafnvel nákvæmlega sömu vöruna í mismunandi umbúðum! Billegustu vörurnar eru þá hafðar í agalega púkalegum pakkningum en hinar í gasalega lekkerum til að réttlæta verðmuninn...svona hefur frú Kvaran lesturinn og ætlar nú að ráðleggja okkur við innkaupin. Við þurfum allar að spara!
Stundum er gæðamunur fyrir hendi, en ótrúlega oft er hann það ekki. Gefið ódýrari vörunum tækifæri til reynslu og ef þið finnið engan mun má spara dágóðan aur í innkaupunum framvegis.

Snarl á borð við þurrkaða ávexti og hnetur má gjarnan finna agalega mikið billegra í bökunarhillum matvöruverslana heldur en þar sem naslinu er stillt út. 

Verið oppvagt og látið ekki glepjast af agalega girnilegum tilboðum við innganginn. Allar líkur eru á að innar í búðinni megi finna ódýrari varning af sama tagi, jafnvel ekki einu sinni á tilboði!

Þar sem búðirnar vilja selja er gjarnan stillt út í augnhæð. Srundum má spara gasalegan aur með því að líta ofar og neðar í hilluna. 

Takið vasareikni með út í KRON. Margar búðir rugla okkur húsmæður með því að gefa á víxl upp kílóverð og verð á aðrar einingar. Vasareiknir getur því sparað okkur agalega margar krónur. 

Góður innkaupalisti sparar fé

Allar flinkar húsmæður gera sér grein fyrir því hversu agalega mikla peninga er hægt að spara með því að skipuleggja matarinnkaup vikunnar og gera innkaupalista sem dekkar ally frá fiskibollum mánudagsins til falska hérans á sunnudegi. Og svo á auðvitað aldrei að fara gasalega svangur að kaupa inn! Skellum í okkur vatnsglasi og hrökkbrauði heima áður en lagt er af stað í Silla og Valda.
 
Einhverjar rannsóknir frá Amríku hafa sýnt að oft eru 60-70% þess sem fólk kaupir í matvöruverslunum eitthvað annað en til stóð að kaupa í upphafi. Stýlkur, það er engin tilviljun að freistingar á borð við nýbakað bakkesli eða afskorin blóm eru einmitt við innganginn í verslunum. Látum ekki verlsunareigendur draga okkur á asnaeyrunum og tökum á sprett gegnum freistingarnar beint inn í mjólkurkælinn!

steina@spegill.is
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur