Svava frá Strandbergi -viðtal
1 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Hún er kölluð Svava frá Strandbergi, sem er listamannanafnið hennar en hún fæddist í húsi í Vestmannaeyjum sem heitir Strandberg.
-Ég man varla eftir mér öðruvísi en teiknandi frá frumbernsku. Níu ára gömul fór ég í Myndlistaskólann í Reykjavík og stundaði námskeið þar með hléum þar til ég var komin á fjórtánda ár.
-En á þeim tíma sendi Myndlistaskólinn án minnar vitundar mynd eftir mig í alþjóðlega barna- og unglingamyndlistarsamkeppni á vegum Unesco, Sameinuðu þjóðanna. Vann ég til verðlauna og fékk sent heiðurskjal á japönsku ásamt verðlaunapeningi.
-Ég fór aftur í Myndlistaskólann í Reykjavík upp úr tvítugu og stundaði þar nám með hléum í þrjú ár.
-Ég var byrjuð að yrkja ljóð um 19 ára aldur og hef haldið því áfram síðan.
Mig langaði til að verða fatahönnuður upp úr tvítugu en það nám var ekki í boði hér á landi.
-Mig dreymdi mjög oft föt á nóttunni og teiknaði þau upp daginn eftir og saumaði þau einstöku sinnum sjálf með hjálp annarra en lét samt oftast kjólameistara sauma fötin. Ég var því oft í mínum eigin sérsaumaða módelklæðnaði þegar ég var ung stúlka.

Marardjúp
-Þegar ég var 22ja ára tók ég þátt í tískuteiknunarsamkeppni á vegum dansks textílfyrirtækis og mér til mikillar undrunar vann ég til verðlauna. Ég var svo vitlaus að fleygja þessum dýrindis flíkum eitt sinn þegar ég var að flytja og sé mjög eftir því. Einnig varð dóttir mín mjög reið út í mig fyrir þetta uppátæki mitt þegar hún komst á unglingsaldurinn. Hana hafði langað til að eiga og kannski nota þessi módelföt.
Svava frá Strandberg fór í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, nú Listaháskóla Íslands frá árunum 1974 -1977. En Svava varð að taka sér hlé vegna margvíslegra ástæðna.
Síðan vann hún fyrir Skagaleikflokkinn í 3 ár við auglýsinga og leikskrárgerð, ritstjórn leikskrár, leikmunagerð og aðstoðaði við leikmyndagerð. Svava
vann einnig fyrir Íþróttafélag Akraness við auglýsingagerð og sömuleiðis vann hún önnur tilfallandi verkefni svo sem fyrir bæjarráð Akraness og fl. Einnig tók hún að sér að gera portrett myndir og skrautskrifa í skáldverk og aðrar bækur sem gefnar voru sem gjafir til hinna ýmsu aðila.

Tveir hestar
Svala stundaði nám í grafískri hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1986 til 1990. Hún vann á auglýsingastofu og tók m.a. þátt í stjórnun sjónvarpsauglýsinga og einnig hefur hún myndskreytt barnabækur fyrir hin ýmsu forlög og kennslugögn fyrir Námsgagnastofnun. Svava myndskreytti Lesbók Morgunblaðsins í 20 ár og þar hafa ljóð hennar einnig birst oftar en ljóð nokkurra annarra skálda.
-Ljóð eftir mig hefur einnig verið notað í kennslugögnum í íslensku og einnig er ljóð eftir mig í bók um hugræna atferlismeðferð sem Reykjalundur hefur gefið út. Sömuleiðis hafa þrjú tónskáld samið lög við fjögur ljóða minna.
Svava frá Strandberg myndskreytti Vikuna um tíma og einnig önnur tímarit.
Hún hefur hannað logo og fleira fyrir hin ýmsu félög, samtök og skóla sem og jólakort. Þá vann hún myndskreytingarsamkeppni Fjölva útgáfunnar 1994.
Svava hefur haldið myndlistar- og skrautskriftarnámskeið fyrir Rauða krossinn og einnig tekið nemendur á myndlistarnámskeið bæði hópnámskeið og einkanámskeið.

Vor
Svava starfaði um tíma við kennslu í Fjölmennt framhaldskóla fyrir geðfatlaða í Geðhjálparhúsinu Túngötu 7, Reykjavík. Kenndi þar myndmennt, íslensku, dönsku, ensku, ljóðagreiningu og skrautskrift.
-Ég hef mest yndi af að teikna og mála konur og hesta því hinar fallegu línur kvenlíkamans og hestanna höfða mjög til mín. Ég mála oft myndir þar sem ég notast við prentliti og terpentínu eða vatn þar sem ég læt litina flæða og oft ræður tilviljun nokkuð til um útkomuna sem mér finnst mjög spennandi. Stundum vinn ég ofan í verkin og skerpi þau með litum eða bleki.

Hestur
-Myndin ástargyðjan Freyja, er gott dæmi um þessa tækni mína. Varir Freyju gerði ég á þann hátt að mála mínar eigin varir með málningu og kyssa með þeim eða þrykkja munninn á andlit Freyjumyndarinnar.

Freyja
-Þessi mynd flokkast eiginlega undir hugmyndalist þar sem hugmyndin gengur út á að eigandi myndarinnar geti kysst þann sem gerði verkið.
Ég hyggst gera fleiri andlitsmyndir af konum og nota þessa hugmynd/aðferð við að gera varirnar á þeim, segir Svava.
-Myndin Haust er sömuleiðis gerð með þessarri tækni í grunninn að láta prentliti flæða í terpentínu eða vatni og skerpa helstu línur með málningu. Einnig myndin Sólheimajökull. Ég vinn líka þrykkmyndir bæði með acryl litum og stundum líka með bleki og nota enn fremur oft kol eða blek við að teikna hesta og konur. Ég hef einnig málað nokkuð með vatnslitum og olíupastel.

Haust
-Ég er með ljósmyndaminni og get fest myndefnið í huga mér og kallað myndefnið fram á blað með penslum eða teiknibleki þegar heim er komið. Ég byrjaði einnig á því að teikna blindandi nemendur mína þegar ég var að kenna í Fjölmennt. Oftast hafði ég teikniblokk á kennaraborðinu og teiknaði nemendurna önnum kafna við verk sín, (án þess þeir yrðu nokkurs varir). Þannig að ég horfði aðeins á nemendurna en leit aldrei á blaðið.
-Ég hef sömuleiðis teiknað frægar persónur eftir minni blindandi eins og t.d. myndina af Nóbelskáldinu Laxness.

Meistari Laxnes teiknaður blindandi eftir minni
-Ég var með sýningu í Gerðubergi á þessum blindteikningum mínum fyrir nokkrum árum. Nú vinn ég á eigin vegum og eru verk eftir mig m.a. í Gallery Art Center Laugavegi 51 og í Gallery Hyggestuen Jyderup, Danmark.
-Ég er meðlimur í FÍT félagi íslenskra teiknara en hef ekki greitt félagsgjöld í nokkur ár. Ég er einnig stofnfélagi í Handverk og hönnun og ein af myndlistarkonunum í Ágústhópnum sem tvisvar hefur haldið saman sýningar hingað til. Í hópnum eru fyrir utan mig Elín Björk Guðbrandsdóttir, Zordís, Katrín Níelsdóttir og Katrín Snæhólm Baldursdóttir.

Sólheimarjökull
Sýningar Svövu eru orðnar fjölmargar:
Samsýning í Rauða kross húsinu 1997.
Einkasýning Borgarbókasafninu Gerðubergi 1998.
Einkasýning í Gallery Stöðlakot 1999.
Samsýning í Rauða kross húsinu 1999.
Samsýning í Ráðhúsi Reykjavíkur 2000.
Samsýning í Digraneskirkju 2000.
Samsýning í Ráðhúsi Reykjavíkur 2003.
Einkasýning í art-Iceland Geysis húsinu 2008.
Samsýning með Ágústhópnum í Ráðhúsi Reykjavíkur 2008.
Einkasýning í Gerðubergi 2008.
Samsýning með Ágústhópnum í Ráðhúsi Reykjavíkur 2010.
Samsýning í Gallery Hyggestuen Jyderup, Danmark 2011-2012.
Verk í opinberri eigu:
Barna og unglingalistasafn Sameinuðu þjóðanna Unesco, Japan.
Hringsjá, Geðhjálp.
Við fengum góðfúslegt leyfi frá Svövu til að birta eitt ljóða hennar:
EKKI OKKAR SÖK
Svört er sól,
sviðin mannaból.
Fossar blóð í Fjandans
feigðarslóð.
Drynur jörð er Dauðinn tyllir tá
í draugalegri borg við Tígrisá.
Grætur barn, gáttir Heljar við
kross- Guðs-farar lutu ei
kristnum sið.
Lítill drengur líkn fékk ei
hjá þeim
sem limlestu og brenndu hans
skinn og bein.
Vér hjálpum þá - Það er hið
- minnsta mál!
Hendur kaupum - gerum við hans sál.
Við sem erum Guðs útvalda þjóð!
- Og ekki okkar sök
- þótt renni blóð.
Drynur jörð er Dauðinn tyllir tá
í draugalegri borg við Tígrisá.
Svava frá Strandbergi.
Hægt er að setja sig í samband við Svövu og skoða fleiri verk eftir hana hér.
Við óskum henni góðs gengis í framtíðinni með hjartans þökkum fyrir hlýjar viðtökur.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





