Tækifærisgjöf
1 febrúar 2012 - Arndís Sigurðardóttir

Í flestum mánuðum ársins eru einhverskonar uppákomur, stórar og smáar. Oft eru þetta afmæli, innflutningspartý o.s.frv. og þá þarf að huga að gjöfum. En buddan er misstór og oft í enda mánaðarins er hún ansi lítil. Þá er þetta tilvalin tækifærisgjöf sem kostar ekki handlegg og tekur 20 mínútur að útbúa, svo er líka svo gaman að gefa heimatilbúnar gjafir.
Hér fyrir neðan er uppskrift af skemmtilegum og vel lyktandi baðsalts pokum fyrir fótabaðið. Slökun, vellíðan og mjúkir fætur er svo ofboðslega falleg og persónuleg gjöf.
Baðsalts pokar
10 tepokar
1 msk grunnolía t.d. kókosolía eða vínberjasteinsolía ( fást báðar í matvöruverslunum)
10 msk epsom salt (fæst í heilsuvöruverslunum)
4 dropar ilmolía eftir smekk t.d. piparmyntu ilmolía
2 dropar matarlitur (má sleppa)
borði/band
glerskál
skeið
Byrjið á því að opna tepokana gætilega og tæmið þá, passið að rífa þá ekki og að bandið haldist á. Setjið saltið, ilmolíuna, matarlitinn, og grunnolíuna í skál og hrærið mjög vel í. Þegar hráefnin hafa blandast vel saman takið þá teskeið og setjið blönduna í tómu tepokana en ekki fylla alveg og passið vel að pokarnir rifni ekki. Takið bandið sem hangir á pokanum og lokið vel fyrir. Bindið svo fallegan borða um pokana og setjið í fallega körfu eða skál. Svo er um að gera að prófa sig áfram með mismunandi ilm og lit og jafnvel er hægt að stækka blönduna og setja í stærri poka t.d. þvottapoka til þess að setja í baðið.
Njótið þess að dekra við ykkur á náttúrulegan hátt, það eiga það allir skilið.
Höfundur: Arndís Sigurðardóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





