logo

Förum með morgunbæn saman...

2 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Ég luma á ýmsu skal ég segja ykkur. Ég á bók, eina eða tvær. Ein af þeim var mér gefin fyrir mörgum árum. Rauð, aðeins fimmtán blaðsíður og eftir því þunn. Hún heitir einfaldlega; Bænabókin. Höfundur er enginn skráður, kannski sjálfur Guð Almáttugur? Hvað veit ég....
 
Á einni opnu eru tvær bænir. Ein morgunbæn og önnur bæn fyrir svefninn. 

Þriðjudagsmorgunbænin er svohljóðandi: 

Góði Guð

Þú ert Guð sem gefur lífið og þú einn veist hvað á eftir að mæta mér í dag. Viltu gefa mér gleði, umburðarlyndi og hógværð, hvað sem hendir mig. 

Viltu gefa mér gleðina þína og hjálpa mér að sjá alltaf jákvæða hluti í öllum kringumstæðum. Þakka þér fyrir þá trú sem þú hefur gefið mér og ég bið þig að auka mér trú.
 
Hjálpaðu mér að líkjast þér og fylltu mig af krafti þínum. Ég bið þig að vernda mig í dag frá öllum slysum og hættum og frá öllum sjúkdómum og veikindum. Varðveittu mig í umferðinni og gefðu mér skynsemi. 
 
Viltu líka gefa að ég heyri þegar þú talar og hjálpaðu mér að hlýða þér. 
Ég vil ganga með þér hvern einasta dag og viltu gefa að ég láti gott af mér leiða. 
 
Leiddu mig í veg fyrir það fólk sem þú vilt að ég hitti í dag og láttu ljósið þitt lýsa í mér. Vertu velkominn í hjarta mitt í dag og alla daga. 

Í Jesú nafni, amen. 

Ef orðið Guð eða Jesú fer eitthvað fyrir brjóstið á þér lesandi góður, prófaðu að setja; Minn Æðri Máttur í staðinn fyrir Guð. 
 
Ef þú trúir aðeins og eingöngu á sjálfa/n þig. Skelltu þá bara nafninu þínu í staðinn fyrir bæði Guð og Jesú.
 
Guð forði þér samt frá því að trúa því í reynd og raun að þú sért sjálfur skaparinn, Guð almáttugur og að allt í þessari veröld sé undir þér komið. 

Gad, Gud og Guð bless! (bara allir guðir...á öllum heimsins tungumálum). 

heida@spegill.is

 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur