Geislaðu af hreysti -þrátt fyrir lítinn svefn
3 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Það er fátt verra en að vakna daginn eftir svefnlitla nótt. Við upplifum okkur þrútin, eiginlega algjört "mess" bara. Það eru til nokkur ráð við því eins og öðru.
Það er að segja, með réttri förðun. Þessi "trix", eiga að gera það að verkum að við lítum út fyrir að hafa fengið dásamlegan átta klukkustunda svefn.
Vektu húðina
Áður er byrjað er á að farða andlitið verður að næra húðina. En fyrst af öllu verðum við að "vekja" húðina og þig auðvitað. Taktu skál með ísvatni og vættu klút í skálinni. Haltu klútnum fast upp að andlitinu í smástund og endurtaktu fimm til tíu sinnum. Núna ættir þú að vera vel vöknuð.
Hyljari til bjargar
Fátt er verra en dökkir baugar undir augunum eftir svefnlitla nótt. Ef þú ert í einhverjum vandræðum með að sjá þá, prófaðu að lyfta kinnunum örlítið upp með fingrunum. Sérðu dýrðina? Flott, skelltu yfir þá bleikum hyljara með fingrunum. En ilurinn af fingrunum veldur því að hyljarinn blandast fallega við þína eigin húð.
Hyljarinn er líka tilvalinn til að setja ofan á augnlokin, séu rauðu háræðarnar þar áberandi, vill gerast eftir svefnlitlar nætur. Einnig er hyljari fyrirtaks "primer" undir augnskugga og hjálpar við að halda honum í skefjum og á réttum stað.
Farði gerir illt verra
Ekki nota farða eða litað dagkrem, nema aðeins á tiltekin svæði, þar sem roði er eða annað sem þú vilt fela. Í dag er ekki rétti dagurinn fyrir þykka köku-meik-lúkkið. Þú lítur enn verr út, þrotinn magnast um helming hið minnsta.
Losaðu þig við rauð augu
Þegar við erum þreyttar, hættir okkur til að vera rauðeygðar. Settu hvítan, beige eða húðlitaðan augnblýant í innanverða augnkrókana. Ef þér er illa við að nota blýant inn í augun, setti litinn inn á milli neðri augnháranna.
Ekki nota fljótandi eye-liner, notaðu heldur augnblýant í brúnu eða gráu (ekki svörtu) og dreifðu út úr litnum, en aðeins á efra augnlokinu. Og alls ekki inn í augun.
Augnskuggar til bjargar
Þegar kemur að því að líta út fyrir að vera vel vakandi, þá skipa augnskuggar veigamikinn sess. Flestar augnskuggapallettur geyma einn náttúrulegan lit. Settu einn slíkan yfir allt augnlokið (alltaf primer fyrst, hyljara eða farða).
Til að virðast vera ekki bara vakandi, heldur sprelllifandi, settu þinn uppáhalds fingur ofan í lit af mjög ljósum augnskugga og "dubbaðu" inn í augnkrókana. Þessi aðgerð dregur athyglina frá dökkum baugum og augun virðast meira opin og líflegri. Að nota ögn af gylltum augnskugga gerir einnig kraftaverk til að hressa upp á þreytt augu.
Krullaðu augnhárin
Að bretta upp á augnhárin er annað "trix" sem gerir það að verkum að augun virðast glaðvakandi. Þú einfaldlega brettir upp á augnhárin með þar til gerðum augnhárabretti og endurtekur þrisvar sinnum. Eftir það berðu maskarann þinn á augnhárin tvisvar, en sleppir neðri augnhárunum.
Töfrapenni; ó, hversu mikið við elskum þig
Ekkert hressir betur upp á allt andlitið en góður töfrapenni sem "platar" augað. Einnig fáanlegt sem krem í litlum túpum. M.a. í MakeUpStore. Þú einfaldlega heldur andlitinu niður og kíkir upp í spegil, með þeim hætti sérðu hvar er þörf á að strjúka yfir með pennanum eða kreminu. Ég hef aðeins reynslu af pennanum frá YSL, mæli hiklaust með honum. Get ekki lifað án hans.
Bleikar kinnar
Bleikur kinnalitur er þarfaþing í þessum aðstæðum. Fáar snyrtivörur láta konur virðast geisla eins af heilbrigði. Best er að nota krem kinnalit og blanda honum á "eplin" með fingrunum. Þú virðist hreystin uppmáluð í orðsins fyllstu, ásamt því að vera úthvíld.
Bjartar varir
Viljir þú draga athyglina frá þreyttu útliti þínu, skelltu á þig björtum og fallegum varalit. Jafnvel hárauðum. Settu natural liti og ljósbleika til hliðar, þangað til þú hefur náð að sofa í þig fyrrum fegurð þína.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





