logo

Humarsúpa með grænmeti

Ég er aðdáandi kokkalandsliðsins eins og kunnugt er orðið, enda nauðsynlegt að elda stundum íslenskt hér suður frá. Til að halda í andann þið vitið. Þessi súpa er nú samt sem áður kannski ekki séríslenskt mataræði frá fyrri tíð. En góð er hún og einföld í matreiðslu. Svo má dúlla meira við hana ef fólki líst þannig á. Ég er svolítið svoleiðis. 
 
En hér er hún eins og hún kemur úr kúnni...frá liðinu okkar:

20 humarhalar
800 ml humarsoð
250 ml rjómi
sítrónusafi
200 g fínt skorið grænmeti (t.d. paprika, gulrætur eða laukur)

Í eldhúsinu:
Salt og pipar

Sjóðið soðið niður í um 350 ml.

Hrærið rjóma saman við, bætið grænmetinu úti, kryddið með smá sítrónusafa og salti og pipar.

Bætið humrinum í og framreiðið heitt.

...en ekki hvað?

steina@spegill.is
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur