logo

Sylvía -íslensk myndlist

4 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Ég hef verið málandi frá því ég var smákrakki, myndlistin hefur alltaf verið mitt aðaláhugamál og ástríða. Verð alveg eirðarlaus og ómöguleg ef ég hef ekki málað í viku eða meira, þá er best að forðast mig, eða rétta mér pensil.
 
 
Ég er alveg ólærð í myndlistinni, fyrir utan nokkur námskeið sem ég fór á sem unglingur. Ég hef samt alltaf stefnt á myndlistarnám, þá annað hvort í Myndlistarskóla Akureyrar eða þá til útlanda.

 
Ég hef verið að prófa mig áfram í mismunandi stíl í gegnum árin, og er en að leita að mínum. En skemmtilegast finnst mér þó að hoppa úr einum stíl yfir í annan og prófa eitthvað nýtt. Álfarnir og íslenska sveitin heilla mig samt alltafmest.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Sylvía er á facebook.

heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur