logo

Use it or loose it!

4 febrúar 2012 - Ester Júlía

Lyftu lóðum og láttu vöðvana hjálpa þér að „brenna“ óæskilegri fitu allan sólahringinn! 
Það er mikill ávinningur í því að vera með góðan vöðvamassa.
 
En stelpur og konur eru sumar hverjar mjög hræddar við að verða of massaðar og vilja helst ekki vera með neinar þyngdir en það er svo sannarlega engin hætta á því að það gerist, konur eru bara ekki byggðar í það frá náttúrunnar hendi.
 
 
Það MÁ taka virkilega VEL á lóðunum og svo þarf að bæta reglulega við þyngdum til að vöðvarnir staðni ekki og breyta æfingaprógramminu reglulega. Það þarf að styrkja alla helstu vöðvahópa líkamans og um leið eykst grunnefnaskiptahraði líkamans því vöðvamassinn sér til þess að við „brennum“ fitu hraðar!
 
 
Það er góð tilfinning að vera með stæltan og sterkan kropp. Það auðveldar allar daglegar athafnir, við þreytumst síður og höfum meiri orku. Að leggja sig eftir vinnuna verður fjarlæg minning, fólk þarf ekki lengur á því að halda þegar líkaminn er allur orðinn sterkari og stinnari. Það má líta svo á að allt í einu sé kominn auka tími í sólarhringinn til að stunda áhugamálið sitt eða fyrir hvað sem er.
 
 
 
Hvað græðum við m.a. á því að auka við vöðvamassann?
 
Meiri liðleika
 
Betra skap
 
Betra sjálfstraust
 
Meiri orku , andlega sem líkamlega
 
Aukinn beinstyrk – spornar gegn beinþynningu

 
Aukinn líkamlegan styrk
 
Meiri grunnbrennslu í hvíld
 
Breytt líkamshlutföll, vöðvar eru helmingi minni en fita ;)
 
Svo dömur mínar og herrar, valið er ekki erfitt, sófinn eða lóðin...
 
Use it or loose it!
 
Höfundur: Ester Júlía
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur