Árćđni skilar ávallt sínu
5 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Það er mikilvægt að vera vakandi í lífinu fyrir árangri fólks í kringum sig. Það er bæði hvetjandi og oft á tíðum vakning fyrir marga, að efla naflaskoðunina sem maður stundar nokkrum sinnum í gegnum lífsleiðina.
Ég þekki mann, sem þekkir mann sem síðan þekkir mig. Málið er hins vegar að ég þekkti varla manninn þegar ég rakst á hann fyrir stuttu. Nýr maður, sami öðlingur engu að síður. Kjartan Valur er snillingur í mínum augum. Enginn vafi leikur á því. Algjör fyrirmynd. Lesið vel og vandlega það sem koma skal.
35 kíló farin og þau eru ekki velkomin aftur
Þetta eru auðvitað setningar sem sitja fast í huga mínum. Það er ekki annað hægt en að spyrja hinnar týpísku spurningar við svona árangur. Hvað gerðirðu?Hvernig fórstu að þessu drengur? Ég er ekki sú fyrsta sem spyr hann. Klárlega ekki sú síðasta.
Svarið vissi ég auðvitað fyrirfram. Hið týpíska skólabókardæmi um það hvernig á að fara að því að léttast og snúa blaðinu við. Snúa blaðinu endanlega við og ekki fletta bókinni afturábak að loknum lestri.
Þú veist líka svarið án þess að þurfa að lesa meira af greininni. Þetta eru engin geimvísindi en samt svo erfitt fyrir marga að hefja ferlið. Fyrir suma alveg ógerlegt. En maður fyllist af von og öðlast birtu við að upplifa svona árangur í gegnum aðra. Þess vegna er mikilvægt að vera vakandi í lífinu og sjá það sem er að gerast í kringum okkur. Mjög mikilvægt. Mjög fróðlegt. Spennandi.
Hann vaknaði einn daginn alltof þungur og heilalaus að eigin sögn. Sofnaði á verðinum þegar kemur að heilsunni. Eftir að hafa lent í alvarlegu mótorhjólaslysi árið 2008 byrjaði mikil óhollusta og ´í kjölfarið voru kílóin fljót að hlaðast upp. Hann var fastur í vítahring sem hann komst ekki út úr.
Hann tók þessi dæmigerðu hænuskref til að byrja með. Gerði sér raunhæf markmið og horfði með nýjum augum á hugtakið „hreyfing“. Breytti alveg viðhorfinu gangvart því að koma sér í form og láta lýsið hverfa. Ekki fara af stað með þá hugsun að vera kominn í fantaform á 12 vikum sem eru eflaust algengustu mistökin þegar fólk fer af stað og leiðin er löng. Þar af leiðandi er þetta hið fyrsta sem fellir mann, þegar maður sér fram á það að það er ógerlegt að ná takmarkinu fyrir tilsettan tíma og vonbrigðin draga mann niður á byrjunarreit.
Fjölbreytni var lykilatriði hjá honum og hann skipti reglulega um í þjálfuninni. Fór í bardagaíþróttir inn á milli þess sem hann stundaði lyftingar. Tók sér pásur og skipti um umhverfi. Fann sér ávallt eitthvað sem var öðruvísi og áhugavert. Breytti mataræðinu hægt og örugglega og leitaði eftir fjölbreytni á því sviði. Kynnti sér matinn áður en hann fór inn fyrir varirnar og hugsaði sig tvisvar um áður en í óhollustuna var farið. Hann telur að fjölbreytni í mataræðinu sé ekki síður mikilvæg en fjölbreytni í hreyfingu. Því þetta er samspil á milli þessara tveggja mikilvægu þátta sem mega ekki verða að kvöð. Eggjahvítur og endalausir próteinsjeikar eru ekki lausn til frambúðar.
Það er mikilvægt að umbuna sjálfan sig. Umbun á ekki að vera á formi matar, heldur á formi ánægju og vellíðunar. Ferð í bláa lónið, nudd og slökun. Utanlandsferð eða þvíumlíkt. Alls ekki matur.
Mikilvægt er að aðskilja þá „vellíðan“ sem matur hafði í för með sér í óholla líferninu þar sem maturinn gat verið huggun. Umbun með mat er röng á svo marga vegu, ef ekki að öllu leyti.
Þetta var vissulega ekki auðvelt og kostaði blóð, svita og tár. Enda stend ég hér í dag, nýr maður að utan sem að innan og mun ekki snúa aftur í fyrra horf. Lífið er léttara í alla staði.
Ég byrjaði á einum degi og hingað er ég kominn tæplega þremur árum síðar.
Hann tók sig til og settist á skólabekk að nýju og lærði einkaþjálfun í gegnum einkaþjálfaraskóla World Class í sína eigin þágu. Til þess að öðlast meiri vitneskju og geta gert hlutina á eigin spýtur og vera fullur fróðleiks fyrir sjálfan sig og aðra í kringum sig.
Hann hefur ánægju af því að aðstoða aðra við að breyta til hins betra í hreyfingu og mataræði því hann þekkir til ferlisins af eigin reynslu. Enda ófáir vinir og ættingjar sem spyrja hann að öllu milli himins og jarðar sem tengist heilbrigði og hollustu.
Ég læt hér fylgja mynd sem segir allt sem segja þarf. Þarfnast ekki útskýringar.
Kjarri, þú ert snillingur.
Höfundur: Erla Björg Eyjólfsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





