logo

Bláberjasprengja

6 febrúar 2012 - Heiđa Ţórđar

Þessi drykkur er sannkölluð sprengja inn í daginn. Og ekki bara það, heldur einstaklega bragðgóður og afar mettandi. Og fallegur! 
 
 
 
 
Það sem þarf í drykkinn er: 
 
2 appelsínur
1 askja bláber (eða 250 grömm frosin bláber) 
Kanill
Fersk mynta
2 msk hunang
1 hrein jógúrt eða vanilluskyr
Hreinn appelsínusafi 
 
 
 

Appelsínurnar flysjaðar og settar í blandarann ásamt jógúrtinu (eða skyrinu) og bláberjunum. 
 
Því næst er handfylli af ferskri myntu og örlitlu af kanil bætt saman við ásamt 3-4 ísmolum. Öllu blandað saman. Bætið við hreinum appelsínusafa eftir smekk. Það er að segja, eftir því hversu þykkan drykk þú kýst. 
 
 
Þegar tilbúið, hellið í ykkar allra fallegasta glas. Skreytið brún glassins með myntu og einnig er fallegt að láta nokkur bláber liggja ofan á.
 
 

heida@spegill.is
Höfundur: Heiđa Ţórđar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur