logo

Sirrý Jóns

Sirrý Jóns er tilbúin persóna í tengslum við sýninguna TÍZKA-KJÓLAR OG KORSELETT í Þjóðminjasafni Íslands.
Ímyndum okkur að við séum stödd á Íslandi á fyrri hluta 7. áratugarins.
 
Sigríður Jónsdóttir, kölluð Sirrý, er heimavinnandi húsmóðir á þrítugsaldri í Reykjavík. Hún er gift Kristjáni Guðmundssyni (Kidda) og eiga þau tvær ungar dætur. Kristján vinnur á skrifstofu. Sirrý hefur mikið dálæti á að fylgjast með tískunni og klæðaburði almennt. Hún leggur mikla áherslu á dömulega, fágaða framkomu og stíl og hvetur aðrar konur til að leggja sig fram við slíkt hið sama, enda er yndisþokki "blómkróna konunnar".
 
Sirrý leggur alúð við að prýða heimili þeirra og gera það notalegt og fallegt. Hún prófar reglulega nýjar uppskriftir úr Eldhúsbókinni og nota hvert tækifæri sem gefst til að halda matarboð. Annan hvern þriðjudag spilar hún bridds með stelpunum og er meðlimur í kvenfélaginu Fjólurnar. Þau búa í nýlegri íbúð í Vogahverfinu.
 
Hér eru upplýsingar um þessa skemmtilegu sýningu Þjóðminjasafnsins.
 
 
 
 
Og ekki nóg með það, Sirrý Jóns er á facebook og vill gjarnan gerast vinkona þín. Hér eru orð frá höfundinum:

Ég skrifa daglegar færslur á virkum dögum, og viða að mér upplýsingum um tískustrauma þessa tímabils í gömlum tímaritum, bókum, á vefnum ofl. Ég reyni að nota orðaval og stafsetningu þessa tímabils eins mikið og hægt er. Þetta er mikið uppáhaldstímabil í sögunni hjá mér, 7.áratugurinn, og hún Sirrý á að vera að skrifa ca. 1962-1964. Þar eru ríkjandi tískufyrirmyndir á borð við Jackie Kennedy ofl. Kjólasýningin er tileinkuð tímabilinu frá lokum 4ða áratugarins og fram til 1970. Það er svo gaman að sjá á kjólunum hvað konur voru meðvitaðar um tískuna, notuðu efni, snið og fyrirmyndir kjóla sem þær sáu í tískublöðum og sniðum erlendis frá.
 

steina@spegill.is
 

 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur