Sportstöðin Selfossi
6 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Ég hef lengi verið fastagestur og eilífðaráskrifandi hjá World Class. Ekki leiðinlegt það. Hins vegar flutti ég, ásamt eiginmanni og börnum út á land við upphaf árs. Mikill aðskilnaðarkvíði átti sér stað á milli mín og World Class. Ég sagði upp áskriftinni með miklum trega og nánast með tárin í augunum. Hvar ætti ég að komast í alla hreyfingarflóruna úti á landi sem gæti hugsanlega staðist samanburð við World Class?
Leitin var afar stutt og einföld. Mér til mikillar ánægju. Ég fann hrikalega huggulega og vel útbúna stöð á Selfossi sem ber nafnið Sportstöðin. Hún hefur allt sem ég leitaði að. Kröfur mínar voru miklar enda góðu vön.
Eigendurnir eru einlægir og viðkunnalegir og leggja líf sitt og sál í þágu viðskiptavina. Það er yndislegt að koma inn á líkamsræktarstöð sem er persónuleg, þú ert ekki bara kennitala á skjánum eða auga í augnskannanum. Heldur er þér heilsað með nafni.
Árni og Anna eigendur Sportstöðvarinnar eru samheld hjón með stóra fjölskyldu samhliða vaxandi fyrirtæki. Þau hófu það ferli að opna nýja líkamsræktarstöð á Selfossi fyrir tvemur árum vegna þess að þörfin var mikil og áhuginn gífurlegur þegar hugmyndin spurðist út á meðal fólks.
Það vantaði nýja líkamsræktarstöð með helstu þægindum fyrir þennan hluta landsbyggðarinnar, segir Anna með bros á vör.
Við gerðum allt frá grunni. Tókum 800 fm húsnæði á þremur hæðum og gerðum það eftir okkar hentisemi og með þarfir viðskiptavina í huga. Allt nýtt og ferskt úr okkar eigin smiðju.
Við unnum dag og nótt til að láta hugmyndir og drauma okkar rætast er kemur að stöðinni, og svo unnum við mikið við upphaf stöðvarinnar og gerum það enn. Fyrirtækið hefur vaxið hratt og örugglega. Okkar til mikillar ánægju og auðvitað hagur fyrir viðskiptavini okkar í leiðinni.
Mikil áhersla er lögð á það að hafa fjölbreytilegt og framandi úrval fyrir viðskiptavini. Hjá okkur er að finna gott úrval af opnum hóptímum ásamt hefðbundnum námskeiðum sem henta öllum og er allsstaðar að finna ásamt því að vera með reynda einkaþjálfara til að liðsinna þeim sem það kjósa.
Árna og Önnu finnst einnig mikilvægt að koma með nýjungar inn á stöðina, hvort sem um er að ræða námskeið eða eitthvað sem viðskiptavinur óskar eftir.
Við erum að sjálfsögðu að þessu fyrir okkar ánægju og umfram allt með þarfir viðskiptavina í huga. Ánægja viðskiptavinarins er okkar ánægja.
Anna segir mér stuttlega frá ferli þeirra beggja og þá liggja leiðir helst að Árna og hans áhuga á öllu sem viðkemur heilbrigði og hreysti:
Árni hefur alltaf verið iðinn og duglegur maður. Hann hefur alla tíð verið að æfa af miklu kappi hvort sem það voru íþróttir á barnsaldri eða lyftingar á síðustu átta árum. Hann hefur tekið þátt í kraftlyftingum og slær ekki slöku við. Mjög virkur, stundum of virkur.
Hins vegar er ég meiri stelpa í þessum málum, stunda ekki kraftlyftingar en hef mikinn áhuga á öllu því sem kemur að yoga, enda er það eitthvað sem ég er að vinna í að koma inn á stöðina okkar í framtíðinni. Þá hafa allir eitthvað til þess að velja úr.
Fyrsta æfing ritara er yfirstaðin og ánægjan lætur ekki á sér standa. Eftir dásemlega og afar erfiða æfingu þar sem járnið var tætt upp og hlaupaskórnir vel nýttir tók á móti mér lítið og krúttlegt spa með heitum potti og saunu. Fullkominn endir á fullkominni æfingu og ég fer sæl inn í daginn.
Ég kem aftur. Engin vafi á því. Takk fyrir kæru hjón, að hafa fært nauðsyn nær landsbyggðinni.
Heilsukveðjur að austan. E.B.I.E
Höfundur: Erla Björg Eyjólfsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





