logo

Engifer og epla -smoothie

7 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Ég elska engifer. Inni í kæli á ég alltaf til blöndu sem ég hef útbúið sjálf og er fáranlega auðveld í framkvæmd og samanstendur af sítrónu, engifer, hunangi og vatni. Þetta sýð ég allt saman og læt kólna vel áður en ég set í lofttæmdar umbúðir og geymi í kæli. Ég hef fyrir venju að drekka einn bolla á hverjum morgni af þessum drykk áður en ég geri nokkuð annað. Hér á eftir fer þó drykkur sem fullyrt er að sé algjör heilsubomba. Að auki fer drykkurinn einstaklega vel í maga. 
 
Þú átt væntalega:
 
1 epli (grænt) 
1 sítrónu
1/2 bolla vatn
Engifer
Ísmola að vild
 
Aðferð:
 
Afhýðið eplið og kjarnhreinsið áður en skorið er niður í hæfilega bita. 
 
Sítrónan afhýdd og steinar hreinsaðir í burt. Engiferið afhýtt, notið ca 5 cm stóran bita. Skerið smærra þó. 
 
Allt sett í blandarann og hrært vel saman. Bætið ísmolum við að vild. 
Setijið í fallegt glas. 
 
Passið ykkur þó að drekka þennan drykk ekki of geyst. 
 
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur