logo

Hættu að hugsa

Ég brosi sætt, veit ekki hvort ég á að setja mig í kynæsandi pakkann einmitt núna. Er svo sem ekkert lengi að svissa þangað með hann svona nálægt mér. Hann er ekki svo ókunnugur. Ekki óþekkt andlit. Bara óþekkur með mér. Ég er hvort eð er komin af stað. Í það ferli með þessum hugrenningum. Ég fæ mér gúlsopa af gulum vökvanum. Síðast var ég hífuð, mjúk og eftirgefanleg. Þurfti bara að láta leiða mig af veg. Svona svífandi viljuga.
Ég er óraveg frá áhrifunum núna; það er silkimjúk freisting að finna hann svo til allsgáð líka og ég set augun í stellingar. Blikka um leið og ég spyr hvort hann sé tímabundinn. Þurfi að gera eitthvað. Varirnar mynda stút til hliðar. Hann biður um reikninginn og borgar. Við förum á bílnum hans.
 
Ég held ég sé ekki í lagi, en ég fíla það. Komin í nett stuð þegar við opnum hurðina sem ég þekki sæmilega. Hann breytir samt út af vananum; við ryðjumst ekki áfram með glampann í augunum eins og vera ber. Heldur kveikir hann á tónlist og býður mér hressingu. Úff, jú jú af hverju ekki? Bara eitthvað, segi ég og hann sækir tvær flöskur. Opnar aðra með hinni og réttir mér. Þá býst ég við að mál sé að setjast í sófann, ég dreg hann með mér, vil enga fjarlægð úr því sem komið er. Hún gæti boðið heim talmáli.
 
Við horfumst í augu og súpum af stút. Svo kyssi ég hann. Öðruvísi, svona með öðrum formerkjum. Finn að ég er pínu feimin. Fáránlegt. Ég banna það. Það þýðir bara eitt í huga mér; sambandið var rétt í þessu að taka skref númer tvö. Á mörkum þess að verða meira en kynlíf. Andskotinn. Ég kyssi fastar, dýpra og einbeiti mér að taugunum sem leiða niður í klof. Smeygi höndinni milli fóta hans og finn það sem ég leita að. Svona, enga vitleysu hugsa ég...bara þetta. Og hættu að hugsa.
 
Ég er logandi bál um stund. Fyrir þig en samt fyrir mig. Þú ert ávani og bindandi. Sestur að í huga og sál. Öllum kroppnum. Ef leiknum er síðan lokið, sit ég í rústunum. Brotunum og sprungunum. Háskalegur leikur elskan. Ertu með? Það er fyrirséð að tapa. Ég er hætt að hugsa. Komdu.
 
steina@spegill.is
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur