Börn sem alast upp hjá siðblindu foreldri
8 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Það er alltaf erfitt að alast upp hjá siðblindri móður eða siðblindum föður. Helstu einkenni slíks uppeldis og afleiðingar þess eru af ýmsum toga.
Börn eru vanrækt
Robert D. Hare segir að skeytingarleysi um velferð barna gangi sem rauður þráður í gegnum rannsóknarskýrslur hans um siðblindu. Siðblindir líta á börn sem óþægindi eða fyrirhöfn.
Börn verða óörugg og ráðvillt
Siðblindur skiptir sífellt skapi og ekki er hægt að spá fyrir um orð hans og gerðir. Það skapar ótryggt og taugatrekkjandi andrúmsloft á heimilinu. Það sem barnið má gera einn daginn er kannski bannað daginn eftir. Annað veifið er dóttirin litla prinsessan, sem fær flottar gjafir og hrós, en svo sætir hún skyndilega rætnum árásum af því hún segir að gerir eitthvað sem siðblinda foreldrinu líkar ekki. Svoleiðis ófyrirsjáanleg og óútreiknanleg hegðun foreldris veldur því að barnið veit ekki sitt rjúkandi ráð. Stöðugar árásir brjóta niður sjálfsöryggið. Barnið lærir að tilfinningar þess skipta engu máli: Þrátt fyrir að „foreldrið“ fari illa með mig á mér samt sem áður að þykja vænt um það.
Barn sem hefur upplifað líkamlegt og andleg ofbeldi í bernsku og lært að tilfinningar þess eru einskis virði mun glíma við lélega sjálfsmynd það sem eftir er ævinnar. Stúlku sem hefur orðið að sætta sig við auðmýkingu, svik og ofbeldi í uppvextinum er hætt við að sækja í sams konar fórnarlambshlutverk þegar hún verður fullorðin (Forward 1988).
Börn taka á sig alla sök
Það er ekki óalgengt að börn verði skotspónn fyrir reiði mömmu eða pabba og að vonbrigði þeirra bitni á börnunum. Barn er alveg til í að taka að sér hlutverk svarta sauðsins vegna þess að það er háð foreldrunum Barnið er viðkvæmt af því að mest af öllu þráir það væntumþykju eða viðurkenningu foreldranna og vill allt til vinna svo foreldið sé ánægt með það. Það skilur ekki að til einskis er streðað, að það er eitthvað bogið við mömmu eða pabba en ekki barnið sjálft.
Börn fyllast innibyrgðri reiði og sýna árásarhneigð
Strákar úr ofbeldisfullum fjölskyldum geta sýnt sömu hegðun og þeir ólust upp við. Hjá stelpum sést þessi reiði oftar sem kvíði, þunglyndi eða sjálfsfyrirlitning.
Skv. rannsóknum hafa ekki greinst sérstök tengsl milli siðblindu og kynferðislegrar misnotkunar. Siðblindir eru ekki líklegri en aðrir glæpamenn til að beita börn kynferðislegu ofbeldi. (Siðblindir vega aftur á móti nokkuð í hópi nauðgara). Þótt sumir sem skrifa um siðblindu vilji hafa sifjaspell og kynferðislega misnotkun barna með í umfjölluninni er því sleppt hér.
Heimild: sidblinda.com
Höfundur: Lísa Björk Ingólfsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





