Vatnslosandi heilsudrykkur
8 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Sumir myndu nefna þennan orku- og heilsudrykk megrunardrykk, þar sem hann er afar vatnslosandi.
Ég er persónulega lítt gefin fyrir slíkar nafna-"bætur", en fullyrði að ef þú setur þennan drykk á matseðilinn, muntu losna við bjúg, fljótt og örugglega.
Við þurfum:
1/2 líter sojamjólk
150 grömm frosin bláber

2 cm ferska engiferrót
5 frosin jarðaber
1 msk kókósolíu
1 msk eplaedik
Ísmola eftir smekk
Allt hráefnið er sett samtímis í blandarann. Þegar drykkurinn er orðinn vel blandaður er hann settur í stórt glas.
Mjög flott er að setja smá "Cappucino-froðu" ofan á yfirborðið og setja 3 fersk bláber og jarðaber skorin í fernt með. Litasamsetningin kemur snilldarvel út.
Fallegt rör og þú ert í toppmálum. Skál!
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





