Sexý og seiðandi safar
9 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við elskum allar allt sem gerir útlit okkar betra. Hvort sem um ræðir dýrindis krem sem á að segja bless við appelsínuhúð og stinna okkur eða safar sem yngja okkur allar upp, bæði að innan sem að utan.
Ég fór á flakk í gegnum útkrotaða bók þar sem finna má ýmsar uppskriftir og sumar dularfullar. Auðvitað er hún útkrotuð, því það er mér gjörsamlega ókleift að fara eftir leiðbeiningum þegar kemur að því að fylgja uppskrift. Hef sagt það oft og segi það aftur.
Engu að síður, hér kemur vitneskjan. Hér að neðan mun ég gefa ykkur uppskriftir að söfum sem segja sex. Ástæðan fyrir því að ég kýs að kalla þetta sexý safa er sú að þér mun líða þannig. Bjúgur hverfur, bumban sogast inn og þú verður ferskari á alla vegu. Ef manni líður ekki sexý svoleiðis, þá verður það sjaldan.
Þetta er einfalt og fljótlegt og klárlega þess virði. Safar sem eru stútfullir af vítamínum og andoxunarefnum sem eru okkur konum alveg í haginn.
Njótið dömur mínar sem eruð mér nær og fjær.
Epladraumur
3 epli
2 dl trönuberjasafi
1 bolli bláber
1 msk psyllum-trefjar í duftformi
Pressið safann úr eplunum og skellið öllu saman í góðan blandara ásamt klökum.
Orkudrykkur
4 gulrætur
1 lítil rauðrófa
2 tsk rifin engiferrót
1 msk hunang
Skafið/flysjið gulræturnar og rauðrófuna. Grænmetið á að fara í safapressu ásamt engiferrótinni og hunanginu er bætt við að lokum.
Perudrykkur
2 perur
3 sellerí staukar
3 cm engiferrót
Öllu skellt í safapressuna og hellt í glas fyllt með klökum.
Appelsínu- og engiferunaður
4 appelsínur
4 cm engiferrót
½ sítróna
Öllu skellt í safapressuna og drukkið af bestu lyst.
Kókos- og spínat dúndur
2 lúkur af spínat
2 bollar af kókosvatni
½ lime
Allt sett saman í blandara ásamt klökum. Tilbúið! Frábær drykkur við upphaf dags.
Engiferskot
5-10 cm engiferrót
½ sítróna
Skella öllu í safapressuna og fá sér skot. Þetta er rótsterkt og rífur í en gerir gott fyrir okkur öll.
Heilsukveðjur E.B.I.E
Höfundur: Erla Björg Eyjólfsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





