Fermingargreiðslurnar í ár
10 febrúar 2012 - Hermann Óli Bachmann Ólafsson


Fermingargreiðslurnar í ár hjá dömunum, munu einkennast af fallegum, mjúkum liðum eins og hefur verið svo vinsælt seinustu ár.
Það allra skemmtilegasta eru fallegar fléttur og kaðlar, sem verða samofnar fermingargreiðslunum.
Það er svo gaman að sjá ungar stelpur halda áfram í litlu stelpuna í sér þó þær séu komnar í fullorðinna manna tölu.
Þessar fléttur og kaðlar gefa greiðslunum flotta fjölbreytni og sérstöðu hjá hverri og einni.

Með því að nota fléttur og snúninga samhliða þeim liðunum sem við þekkjum, er hægt að ná fram sérstöðu og undirstrika persónuleika hverrar stúlku enn frekar, því engin stelpa verður alveg eins.

Eins verður gaman að fylgjast með og skoða hverja og eina stúlkukind og sjá alla fjölbreytnina sem kemur til með að verða ríkjandi í ár.
Strákarnir í ár verða líka stórglæslegir. Tvenns konar greiðslur/klippingar ráðandi.

Annars vegar það þeir strákar sem kjósa að vera með stutt í hliðunum, en meira hár að ofan.
Hinir strákarnir kjósa að vera með enn styttri hliðar, jafnvel rakaðar og góðan lubba að ofan.

Það er gleðilegt að sjá að strákar eru farnir að láta til sín taka hvað almenna hárumhirðu og tískutrenda varðar. Þeir vita hvað þeir vilja og hafa sterkar skoðanir, sem er frábær þróun.
Elskur: Pantið endilega tímanlega í fermingargreiðslurnar/klippinguna eða hafið samband hér.
Höfundur: Hermann Óli Bachmann Ólafsson
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





