Fiskbollur
10 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Já, ég er alltof löt við svona gamla og góða heimilisrétti. Ég er í öllu öðru svo vikum skiptir stundum...alltaf að prófa eitthvað nýtt endalaust. Stundum verður maður bara að fara á upphafsreitinn; back to the basics eins og það stendur. Og nú bregð ég fyrir mig kokkalandsliðinu, þeir eru góðir í svona ömmubollum úr fiski.
Fiskbollur
500 g hökkuð ýsa
2 eggjahvítur
50 ml rjómi
1-2 saxaðir skalottlaukar
1/2 tsk lyftiduft
Í eldhúsinu:
50 g hveiti
olía
salt og pipar
Blandið fiski, eggjahvítum og lauk saman, hrærið rjómann saman við og loks þurrefnin, kryddið með salti og pipar.
Mótið deigið með ískúluskeið og steikið á vægum hita í smá olíu á hvorri hlið í 1-2 mín.
Ef bollurnar eru stórar þarf að klára þær í ofni við 150°C í 3-5 mín.
Mjög bragðgott er að krydda aðeins meira með einhverju góðu kryddi eins og t.d. estragon og rífa smávegis súraldinbörk saman við deigið.
Afbragð að bera bollurnar fram með grænmeti og sósu, t.d. með gratíneruðu blómkáli og sinnepssósu.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





