logo

Hrein hollusta og himnesk

10 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Hér er um að ræða einstaklega góðan og einfaldan heilsudrykk. Sérstaklega góður fyrir þá sem eru með mjólkuróþol. 
 
Mjólkuróþol er kallað svo, þegar einstaklingur getur ekki melt mjólkursykur (laktósa). Þessa einstaklinga skortir nægilegt magn ensíma sem kallast laktasi, en það gegnir því hlutverki að brjóta niður mjólkursykurinn í meltingarvegi.
Bent skal á að mjólkuróþol og mjólkurofnæmi er ekki það sama. Ef fólk er með ofnæmi fyrir mjólk þá er það ónæmiskerfi þess sem bregst við ákveðnum próteinum í mjólkinni og ræðst gegn þeim eins og um óvelkominn aðskotahlut væri að ræða.
 
Fólk með mjólkuróþol getur ekki melt mjólkursykurinn og fer hann því ómeltur niður í ristilinn, þar sem hann gerjast og veldur óþægindum. Afleiðingarnar geta verið uppþemba, niðurgangur, magakrampar og vindgangur.
 
Einkenni mjólkurólþolsins koma venjulega fram um 30 mínútum eftir neyslu mjólkurafurða, en þó geta liðið allt að 2 tímar.
 
Tíðni mjólkuróþols er mjög ólík eftir heimshlutum. Algengt er á sumum svæðum að 100% fólks sé ófært um að vinna á mjólkursykri en mjólkuróþol er sjaldgæfast hér á Vesturlöndum.
  
Flest ungabörn framleiða yfirdrifið nóg af laktasa og er mjólkuróþol því óalgengt meðal barna á fyrstu æviárunum. En þó er það inni í myndinni og eru einkennin þá gjarnan froðukenndur niðurgangur sem veldur bleyjuútbrotum, hæg þyngdaraukning og uppköst.
 
Mjólkuróþol getur verið óþægilegt en það er ekki hættulegt og má á einfaldan hátt vinna á móti óþægindunum. Sneiða þarf hjá mjólkurafurðum en þó með undantekningum.
 
Fólk getur borðað harða brauðosta, t.d. Gouda, þar sem bakteríurnar sem hleypa ostinn brjóta niður mjólkursykurinn í ferlinu. Sumir þola einnig jógúrt þar sem mjólkursykurinn hefur brotnað niður að hluta til (upplýsingar fengnar að láni frá Heilsubankanum). 
 
Það sem þarf í þennan heilsudrykk er eftirfarandi:
 
1/2 bolli hrísgrjónamjólk (eða sojamjólk) 
14 fersk og meðalstór jarðaber (eða 1 1/2 bolli frosin jarðarber) 
1/2 bolli ferskjur (ferskar eða frosnar) ef ferskar -skerið niður smátt
1/2-1 banani
Ísmolar eftir smekk

Allt sett í blandarann uns vel hrært saman, drekkið loks og njótið.

heida@spegill.is 
 
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur