Hunang er heilsubót
10 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég tók upp á því um daginn að setja smá hunang í teið mitt í stað sykurs. Fannst hugmyndin góð, bara af því bara. Svo sit ég og fletti Frú Kvaran að gamni og rekst á þessar staðreyndir sem konan virðist hafa safnað í bauk. Um hunang. Hún er ekki bara pínu fyndin stundum, henni er líka fúlasta alvara í því sem hún lætur frá sér.
Hunang er heilsubót
Það er sótthreinsandi. Gott ráð við hálsbólgu er að hræra saman teskeið af sítrónusafa og matskeið af hunangi og taka þetta inn í litlum skömmtum yfir daginn. Þá er nú ekki amalegt fyrir eiginmanninn að fá dísætan koss í leiðinni!
Það er róandi. Takið teskeið af hunangi inn fyrir svefninn þegar valíumglasið tæmist.
Það á að hjálpa börnum að pissa síður undir á nóttunni. Teskeið á hverju kvöldi er skammturinn og áreiðanlega ekki erfitt að koma því ofan í elskurnar litlu.
Það er frábært á bruna. Þá eru líka hráar kartöflusneiðar gasalega effektífar.
Það slær á timburmenn. Hunangið er næringarríkt og fullt af ávaxtasykri sem kemur kroppnum í stand eftir skemmtanalífið.
Kaupið kaldpressað hunang í heilsubótarskyni, ódýrt hunang hefur verið hitað og hefur miklu minni virkni, elskurnar.
...og þá vitum við það. Sneddí hún Kitschfríður okkar.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





