logo

Súpa sem þjónar æðri tilgangi

11 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við erum öll á einhverjum tímapunkti að taka okkur á, hvort sem viðkemur bættara útliti, lífsstíl eða heilsu. Nóg er til af lausnum og hugmyndum. Hvort sem það er krem, pilla, aðgerð eða einfaldar og flóknar heilsusamar uppskriftir.
Í huga mínum leynist dásamleg uppskrift að súpu sem sprengir út allar frumur í líkamanum. Að sjálfsögðu til hins betra. Það eru til margar útgáfur af henni. Ég veiti þér mína. Slurp.
 
Þessi súpa er furðu góð miðað við allt sem hún gerir. Hún grennir, losar umfram vatn, bætir meltinguna og hreinlega bara kætir þig. Ég lofa.
 
Ég bý yfirleitt til mikið magn af henni því hún geymist vel í ísskáp og er fullkomin í frystirinn. Auðvelt að grípa hana með og skiptir í raun og veru ekki máli hvort hún er köld eða heit þegar hennar er neytt. Furðulegt. En satt.
 
3 stórir laukar, smátt saxaðir
1 lítið hvítkálshöfuð, smátt saxað
3 paprikur, gul, rauð og græn, skornar niður
5 sellerí stilkar, skornir niður í smáa bita
10 gulrætur, flysjaðar og skornar niður
2 dósir krossaðir tómatar
10 hvítlauksgeirar, pressaðir
1-2 brokkólí hausar, skornir niður
1-2 blómkálshausar, einnig skornir niður
1 msk cayenne pipar
3 tsk grænmetiskraftur frá himneskt
dass af salti og pipar
vatn svo fljóti yfir
 
Sjóðið allt saman í ca 1 ½ klukkutíma og súpan er tilbúin. Fullkomið að bæta við kjúklingabaunum frá himneskt.
 
Njótið lengi og vel.
 
Heilsukveðjur E.B.I.E
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur