Gullkorn
12 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég var að sýsla í eldhúsinu. Skottan mín var með vinkonu í heimsókn úr leikskólanum og það var glatt á hjalla. Svo gaman að ég var fullviss um að það tæki dágóðan tíma að koma öllum leikföngum haganlega fyrir aftur í barnaherberginu.
Eitthvað voru þær að vanda sig og ég heyri að vinkonan segir:
Heyrðu – ég sé þetta ekki almennilega.
Skottan var fljót að svara:
Á ég að lána þér gleraugun mín?
Ég hreinlega sprakk frammi í eldhúsi. Oft hefur maður heyrt svipaðar setningar þegar fólk sem er komið á „sjóninaðversna“ aldurinn er að rýna í eitthvað.
Been there done that.
En þetta var svo yndislega einlægt ...gullkorn í gullakistuna.
Höfundur: Lísa Björk Ingólfsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





