Gleðilegan mánudag
13 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Ég á litla bók sem hefur að geyma allskyns ljóð, bænir og hugleiðingar. Fyrir löngu síðan skrifaði ég inn í þessa bók lítið ljóð.Því miður man ég ekki hvaðan ég fékk ljóðið og er höfundur mér því ókunnur.
Sagan segir að bandaríski fótboltaþjálfarinn Paul Bryant hafi alltaf gengið með þessa bæn á sér. Flott íhugun í upphafi dags. Í upphafi splunkunýrrar viku.
Allra best er auðvitað að vera meðvitaður um gullkornin og innihaldið sem þessi bæn hefur að geyma, á degi hverjum. Alltaf.
Gjörðu svo vel:
Þetta er upphafið að nýjum degi.
Guð hefur gefið mér þennan dag til að nota að vild.
Ég get sóað honum eða notað hann til góðs.
Allt sem ég geri í dag er mjög mikilvægt,
því ég geri það í skiptum fyrir heilan dag af lífi mínu.
Þegar morgundagurinn kemur,
verður þessi dagur farinn forgörðum að eilífu,
en eftir stendur það sem ég valdi að fórna fyrir hann.
Ég vil að hann feli í sér árangur en ekki afturför,
gæsku en ekki illsku,
velgengni en ekki mistök,
svo ég muni ekki sjá eftir því verði sem ég greiddi fyrir hann.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





