logo

Gríman 1. hluti

14 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Hinn ofurfullkomni sjarmur

Það er alveg ótrúlegt að lesa sér til um siðblinda (Psychopaths). Í raun eru þetta snillingar, en því miður snillingar sem eru öðrum mjög hættulegir. Miðað við þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á siðblindu erlendis er með ólíkindum hve lítið hefur verið fjallað um hana hér. 
Sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að siðblindir leggja allt í rúst umhverfis sig og stendur alveg á sama. Skiptir ekki máli hvort það er á framabraut, í einkalífi eða á glæpaferli.
 
Það er ekki bara þessi staðreynd sem rekur mig áfram hvað varðar umfjöllun á þessu efni. Líka koma til þakkir þeirra sem hafa haft samband við mig undanfarna daga. Þakkir frá konum sem hafa fundið sig niðurbrotnar á einn eða annan hátt. Ásamt því að finnast þær vera einar í heiminum. Að segja sögu frá þessari yfirnáttúrulega sjarmerandi persónu sem sá siðblindi leikur af einstakri snilld setur flestar konur í sæti meðal „geðsjúkra“ eða þaðan af verra. Glætan að einhver trúi þeim.
 
Hvað um það – það er þeim sem ekki trúa sjálfum fyrir verstu. En vegna þessara móttekna og þeirrar staðreyndar að oftar en ekki eru börn inni í dæminu, þá held ég áfram að fjalla um þennan ótrúlega málaflokk. Ykkar vegna. Eða einhvers sem þið þekkið. Eða einhvers sem þið gætuð lent í seinna.
 
„Geðfelldur, sjarmerandi, gáfaður, áhugaverður, traustvekjandi og yfirnáttúrulegt aðdráttarafl á konur“. Þetta eru lýsingarnar sem maður sér oftast þegar verið er að tala um siðblinda. En „óábyrgir, haldnir sjálfseyðingarhvöt“ kemur líka skýrt fram.

„Venjuleg“ manneskja á auðvelt með að heillast af þeim siðblinda, vegna þess m.a. hver ótrúlega gott sálfsálit hans virðist vera. Þessi sjálfsöryggi herramaður gjörsamlega galdrar hvaða dömu sem er upp úr skónum.

Siðblindir notfæra sér annað fólk og vita nákvæmlega hvað þarf að gera til að snerta við tilfinningum annarra. Þeir hafa sérstaka náðargáfu þegar kemur að því að finna „blíðar og ástríkar“ konur.

Oftast láta þeir vorkenna sér til að sannfæra aðra um einlægni sína. Þeir hafa sorgarsögu að segja og eru fórnarlömb. Með þessu geta þeir látið aðra trúa að þeir hafi raunverulegar tilfinningar rétt eins og annað fólk. Þetta eru snillingar í að látast hafa ríkar tilfinningar meðan raunin er hinsvegar sú að þeir eru að mestu gersneyddir þeim. Þeim er sama um allt nema að ná takmarki sínu, hvað sem það svo er.

Vorkunnsemin er ein ástæða þess sem fórnarlömb þeirra gjörsamlega falla fyrir þessum „fórnarlömbum“ sem hafa „átt svo bágt“.

Það er jafnauðvelt fyrir þann siðblinda að ljúga eins og fyrir aðra að draga andann. Ef það kemst upp um lygi þeirra – þá einfaldlega búa þeir til nýja til að breiða yfir þá fyrri.

Það vill nefnilega svo til að ef grannt er skoðað er þeir fullir af þversögnum. Oftast komast þeir samt upp með þetta.

Svona einmitt vinna siðblindir. Þeir neita sannleikanum þar til fórnarlömb þeirra fá jafnvel taugaáfall. Oftar en ekki ásakar sá siðblindi hinn aðilann um að vera ekki í lagi.

„Þú ert geðveik, leitaðu þér hjálpar“. Sá sem þekkir siðblindan kannast vel við þessar setningar. „Þú ert rugluð, það trúir enginn því sem þú segir, það er eitthvað að þér“.

Það sem er líka alveg stórkostlegt við hinn siðblinda er hvað hann man bara það sem hann vill muna. Minni hans virðist henta honum fullkomlega.

Siðblindir eru oftast hrokafullir og sjálfumglaðir. Hinsvegar kunna þeir að segja alla réttu hlutina við væntanlegt fórnarlamb. Til þess að fá það til að trúa að þeir séu góðhjartaðir einstaklingar.

Í raun skiptir fórnarlambið það engu máli. Sá siðblindi bara vill það. Eða vantar það. Þessa stundina.

Oft á tíðum á sá siðblindi til að gorta sig endalaust af öllu því „slæma“ sem hann hefur gert. Það undarlega er, að oftar en ekki er konan sem er töfruð af honum, getur ekki séð staðreyndir. Ekki einu sinni ef hún er vöruð við honum af öðrum.

 Af hverju ekki?

Vegna þess að hann lætur henni líða eins og hún sé „einstök“.
 
Ég ætla að láta þetta duga í bili, smá upphitun. Þeir forvitnu geta farið í heimildirnar og séð að þetta er allt saman skrifað út frá könnunum. Hitt er annað. Ég hef of oft heyrt þessa sögu – nákvæmlega svona, um fyrstu kynni kvenna af siðblindum manni.
 
Áframhald síðar.
 
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur