Varasalvi sem virkar á frunsur!
14 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Okkur finnst ótrúlega gaman að fá reynslusögur frá ykkur. Sérstaklega þegar verið er að hæla vörum og/eða þjónustu, í víðum skilningi. Magga Hrönn er búsett í Sandgerði og býr til allskyns krem og smyrsl, að auki skrúbba og margt fleira. Hún notar aðeins náttúruleg hráefni og hefur fengið mikið lof fyrir virkni krema sinna. Fyrir stuttu barst okkur bréf. Viðkomandi hafði þjáðst af þrálátu exemi, en fékk mein bóta sinna með kremi frá Möggu Hrönn. Hér má lesa greinina.
Við birtum hér ummæli um varasalvann hennar Möggu Hrannar, sem okkur bárust, orðrétt:
Á mínu heimili hafa frunsur verið tíður vandi. Ég og dóttir mín fáum frunsur mjög reglulega. Leiðinlegur og mjög svo óþægilegur vandi. Magga Hrönn gaf okkur salva sem hún er að útbúa sjálf og viti menn HANN VIRKAR. Ég hef prófað allt sem selt er í apótekum og heilsuhúsum, tekið inn bætiefni og hvaðeina sem hefur virkað misvel. Salvinn er lyktarlaus, bragðlaus og í þægilegum umbúðum. Er Möggu þakklát fyrir að hafa komið okkur til bjargar!
Kær kveðja
Fanney Dóróthea Halldórsdóttir, Skólastjóri Grunnskólans í Sandgerði.
Ekki amaleg umsögn! Hægt er að setja sig í samband við Möggu Hrönn á Facebook síðu hennar með því að smella hér.
Í framhaldi hvetjum við ykkur til að senda okkur línu ef þið hafið góða sögu að segja af vöru og/eða þjónustu. Við elskum allt sem er jákvætt. Og ekki síst ef það kann að verða öðrum til hjálpar.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





