Bad hair day?
15 febrúar 2012 - Arndís Sigurðardóttir

Er hárið allt í flækju, eða flatt og ómögulegt? Ó við eigum allar svoleiðis daga, ef hárið er ómögulegt er allt ómögulegt.
Góð hárumhirða er svo mikilvæg og langaði mig því að deila með ykkur uppskrift af djúpnæringu sem gerir hárið dúnmjúkt og fallegt svo ekki sé minnst á dásamlega kókosilminn sem henni fylgir.
Kveikið á kertum, fáið ykkur súkkulaði og góðan drykk í glas og njótið þess að slaka á eftir langan dag.
Kókosdraumur
1 lítil dós kókosmjólk
2 msk kókosolía
2 msk ólífuolía
stálpottur
glerskál
handklæði
Hitið allt hráefnið saman í potti við lágan hita þar til blandan verður volg. Ef hún verður of heit látið þá kólna í smástund. Hrærið vel saman og greiðið blönduna í gegnum blautt hárið og vefjið í heitt handklæði. Leyfið næringunni að vera í hárinu í 20 mínútur. Þvoið svo vel úr með sjampói. Notist samdægurs.
Njótið þess að dekra við ykkur á náttúrulegan hátt.
Ef þið viljið kynna ykkur fleiri uppskriftir kíkjið þá á bókina mína hér.
Höfundur: Arndís Sigurðardóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





