Krullur krullur og ennþá meiri KRULLUR!
15 febrúar 2012 - Hermann Óli Bachmann Ólafsson


Það fer ekki framhjá neinum að liðir og krullur eru ódrepandi tískufyrirbæri enda góð leið til að fullkomna fallegt heildarútlit. Ég heyri svo oft kvenfólk segja: Æji, það tollir ekkert í hárinu á mér. Eða: Æji, ég kann ekki að gera krullur með sléttujárninu minu", enda ekkert skrýtið.
Mig langar að benda ykkur á snilldartæki sem allar mömmur og ömmur ættu að eiga: Carmen rúllur! Þetta tæki er hin mesta snilld. Allar mömmur fengu svona í fermingargjöf hérna á árum áður :)
Langbest er að þvo sér um hárið. Eða bleyta hárið og skella froðu í það blautt og blása síðan upp úr froðunni.
Persónulega, þessa dagana er ég sjúkur í Totally baked frá Bead Head úr nýju Candy línunni þeirra.
Þessi froða gerir það að verkum að stelpur: Allt sem venjulega rennur úr, það helst!!
Eftir að þú ert búin að þurrka hárið, eru rúllurnar pottþétt orðnar vel heitar...Carmen þú manst.
Passið að brenna fingurna ekki (alls ekki gaman að vera fá sér hvítt og geta varla lyft glasi vegna sársauka). Skellið rúllunum upp hálft hárið og klemmið þær þar. Mér finnst skemmtilegra að nota 2-3 stærðir af rúllum og setja þetta soldið óreglulega í.
Svo kemur það besta: Leyfðu rúllunum að hanga í, á meðan þú gerir fallegt make up á þig. Þegar þú ert búin, er komin tími á að taka rúllurnar úr.
Hérna er gott að taka fram smá hársprey og spreyja yfir krullurnar. Gott að nota puttana til að losa aðeins um krullurnar. Best er að setja svo efni í hárið sem heitir Sugar Dust frá Bed Head.

Þetta er púður sem sett er í rótina og lyftir hárinu og þú þarf ekki endalaust vera fikta í hárinu eða hafa áhyggjur að allt sé flatt og boring :)
Þessi aðferð mun aldrei klikka og Carmen rúllur verða uppáhaldstækið þitt for ever!
Svo er auðvitað hægt að leika sér og prufa að setja rúllurnar alveg upp, rúlla þeim á hlið ofl. Bara spurning um að fikra sig pínu áfram.
Væri gaman fá póst frá ykkur stelpur ef það er eitthvað sem ykkur langar að vita meira um, eða af hverju eitthvað gerist; spegill@spegill.is.
Ég skora á ykkur að prófa þetta með rúllurnar, tekur enga stund, er algjört æði og skemmtilega töff :)
Kv Hermann Óli B.
Höfundur: Hermann Óli Bachmann Ólafsson
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





