logo

Mamma er ekki heima

15 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég átti einu sinni mann. Og þurfti að skreppa að heiman...hann fékk bréf. Man bara ekki alveg hvort honum þótti það fyndið.
 
Elsku vinur.
 
Ég þarf að skreppa frá í samtals níu daga en ég er viss um að þú spjarar þig bara vel með heimilið og börnin. Datt í hug að setja hér niður nokkur atriði sem hjálpa þér í gegnum þetta.
 
Hundurinn fær núna að borða snemma á morgnana, hann er í aðhaldi og þú manst þegar ég sagði þér að gott væri að passa að borða ekki seinna en klukkan sex á kvöldin til að ná að brenna máltíðinni áður en lagst er til svefns, en með því móti nærðu 500 hitaeiningum aukalega bara yfir nóttina (hint). Kettirnir verða að vera úti á næturnar; sá litli er næturhrafn og fær hina með sér í alls kyns leiki og hopp og hí þannig að manni verður ekki svefnsamt og með öll þessi aukahljóð í húsinu verður erfitt að greina innbrotsþjófa frá köttum að hoppa milli húsgagna.
 
Yngsta barnið okkar er á leiklistarnámskeiði virka daga frá 16 til 17 út þennan mánuð, nema þegar hún er í dansi en þær æfingar eru nú á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17 hjá henni og 19 hjá systur hennar. Það eru reyndar smá auka fyrirmæli hvað það varðar vegna þess að núna er sýningin framundan og æfing í búningum og generalprufa á sviði verður sett inn í prógrammið (best ég setji það á ísskápinn bara..).
 
Nú svo í næsta mánuði þá hefst tónlistarskólinn hjá báðum yngri stelpunum en þú þarft að koma þeim niðureftir alla föstudaga, klukkan 17.30 og sækja þær klukkan 18.30 eða 19.00. Ég bara man það ekki eins og er en þú finnur út úr því fyrsta daginn. Það er full þörf á að taka til hendinni í skúffunum og skápunum hjá þessum skutlum en þú kannski getur notað unglinginn í það, komum að því síðar.
 
Áfram með þessa yngstu. Hún er lítið skass og skánar ekkert með aldrinum; það verður að hafa taumhald á frekjunni í henni og alls ekki láta hinar tvær hliðra til svo að hún nái sínu fram. Þetta verður að stöðva. Aftur á móti er hún með eindæmum skemmtilegur krakki eins og þú veist og það verður bara betra með aldrinum. En hún er bara skemmtileg þegar hún er í góðu skapi og ég myndi segja að þú komir til með að horfa fram á fifty fifty. Hún þarf að láta tannlækninn kíkja á tönnina sína 7. næsta mánaðar (set það líka á ísskápinn).
 
Svo er það miðjubarnið okkar. Hún á sínar krísur líka eins og hinar tvær. Það örlar stundum á fýluköstum hjá henni og hún er búin að taka við af unglingnum með frasann um hvað við erum ógeðslega leiðinleg. Þú mátt samt ekki kenna þessari elstu um það, vegna þess að ég hef líka gerst sek um að nota þetta íslenska lýsingarorð um fýluköstin hennar. Það hefur reynst betur að reyna að fá hana í umræður um það hvers vegna þú ert svona leiðinlegur og benda á hluti sem geta varla talist leiðinlegir. Hún þarf athygli þessi skvísa og það þarf að brýna fyrir henni að reyna að stríða litlu systur ekki alveg svona mikið. Ef hún nær sér á flug í því, þá ertu í vanda staddur og allar líkur á að þú missir þig en það kann ekki góðri lukku að stýra (been there done that).
 
Miðjubarnið er með heimanám í fríinu en við skulum bara alveg geyma það þangað til ég kem tilbaka. Ef þú ætlar með hana í bæinn þá skaltu láta hana vita með mjög góðum fyrirvara og setja sléttujárnið í samband. Hún er nefnilega ástfangin af strák og hann gæti verið á torginu. Eins og þú veist þá lét hún sig hafa það að mæta á þrjár síðustu fótboltaæfingarnar í vetur og hlaupa um völlinn fyrir hann og bara svo þú vitir það þá er fjölskyldu hans fullkunnugt um ráðahaginn.
  
Unglingurinn er á batavegi eins og augljóst er orðið en þú þarft að einbeita þér líka (svona unglinga og foreldraveiki á það til að taka sig upp aftur). Hinn gullni meðalvegur er lykillinn og þolinmæði, virðingu og vináttu má alls ekki vanta. Það er komin ágætis reynsla á þetta hjá okkur en reyndu líka að finna smá quality time fyrir ykkur tvö, best þegar litlu stýrin eru sofnuð og alls ekki stilla á boltann eða golfið...það fer ekki vel í unglinginn, svona stelpuþættir virka bara vel. Það er enn í gildi útgöngubann og ef hún fer í bæinn að kvöldi til þá er hún með okkur eða vandamönnum. Hún má bara gista hjá bestu vinkonu sinni ef út í það er farið. Það er nauðsynlegt að hún hjálpi aðeins til á heimilinu sbr. skúffur og skápar hér að ofan. Stelpan blómstar alveg elskan en passaðu upp á hana.
 
Heimilið ræðurðu svo sem hvernig þú trítar á meðan ég er ekki til staðar til að pirrast á því en það er nú samt ákveðinn standard þegar gestir sækja heim eins og þú veist og æ æ það er barasta von á fullt af gestum akkúrat á þessum tíma. Ef þú ætlar að halda andlitinu hvað þetta varðar þá þarftu að skúra snemma á morgnana meðan enginn annar er vaknaður og skipta um sand í kattakassanum.
 
Klósettin og vaskarnir þurfa líka opin augu og svo þarf reglulega og helst í hvert skipti sem ísskápur og ruslatunna eru notuð að þurrka yfir fingraförin. Best er að nota í þetta viskustykki sem er örlítið rakt. Sófann þarf að dusta og renna yfir með límrúllu nokkrum sinnum á dag; gerðu þetta bara svona eins og í framhjáhlaupi þá venst þetta og verður að vana og alls ekki gleyma þessu áður en þú ferð upp að sofa; þetta vill bögga mann þegar maður er að festa svefn.
 
Hvíta sófaborðið vill laða að sér alls konar kámerí og það er jafngott að nota viskustykkið í það. Ef það er afar kámugt kemur blaut tuska sér vel en mundu þá að fara yfir með þurru því að annars koma rákir. Það er full ástæða að nefna marmaraborðplötuna í eldhúsinu en brauðmylsna og sykurkorn vilja falla vel inn í mynstur plötunnar; þá er gott að ganga úr skugga um að þrifið hafi verið með því að beygja sig þar til augun eru í hæð plötunnar og þú sérð yfirborðið. Ekki gleyma að lyfta brauðristinni varlega upp þegar þú þrífur undir henni og láta hana varlega niður aftur; það vill hrynja úr henni.
 
Ef svo illa vill til að þú ert heima seinni partinn þegar sólin skín inn um eldhússgluggann þá sérðu að skápahurðar hafa kámast yfir daginn og ég vara við þessu; þetta er óþolandi bögg! Ekki örvænta elskan, fáðu þér einn kaldan og renndu yfir þetta með spreyi úr vasksskápnum.
 
Þvotturinn sér nánast um sig sjálfur, bara að henda í eina til tvær vélar á dag og láta þurrkarann um rest. Þú þarft bara að brjóta saman og ganga frá. Ef þú týnir einhverju prófaðu þá að spyrja dætur okkar en það er líka ágætis regla að leita pínulítið þegar maður er búinn að opna skápana og sér ekkert við fyrstu sýn. Reyndu að dreifa linsuboxunum þremur á ólíka staði en þó staði sem þú heldur að þú komir til með að leita á. Ég sleppi því að minnast á garðinn, þú sérð það bara sjálfur.
 
Mundu svo að maðurinn er aldrei einn, ég verð með þér í huganum og að sjálfsögðu á ég minn stað í hjarta þínu. Stelpurnar sjá um að dreifa huganum hjá þér og eins munu þær sjá til þess að þú hafir nóg að gera en þá líður tíminn hratt. Rósa frænka verður svo með mér þegar ég kem aftur heim. Við hlökkum til að sjá þig.
 
steina@spegill.is
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur