logo

Að skrifa

16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég skrifa. Alla daga, öll kvöld og leitast við að verða betri. Ég á mér draum um að geta fengist við einmitt það um alla framtíð. Ég er með bakteríuna. Hvað með þig? Ertu að skrifa? Mundu þetta...
Hafðu auðmýktina með í farteskinu. Við gerum öll mistök og það þarf kjark í að leyfa öðrum að sjá þau. Ekki vera hrædd við að deila skrifunum þínum með öðrum. Það að fá viðbrögð er mun mikilvægara en einhver óþægindi eða hræðsla við gagnrýni. Til að verða rithöfundur er þetta skref óhjákvæmilegt.

Það er erfitt að skrifa. Trúðu mér, enda ekki öllum gefið frekar en annað. Það er auðvitað ekki alltaf erfitt, stundum leikur penninn í höndunum á okkur. En ef þú hefur metnað, mun það á stundum verða þér afar erfitt. Það getur til dæmis verið afar erfitt að fara yfir skáldsögu í fjórða eða fimmta sinn. Það er líka erfitt að setjast niður til að skrifa þegar hugurinn er á flakki einhvers staðar annars staðar og ekkert kemur frá manni. Jafnvel svo dögum skiptir. Og að sjálfsögðu er erfitt að fá svo höfnun eftir höfnun sem oft er staðreynd þegar við erum að byrja. Frá tímaritum, opinberum vefsíðum eða útgefendum. Búðu þig undir að fá nokkur nei, áður en þú færð þitt fyrsta já. Taktu ráðum og dáðum ef þau berast þér. Uppbyggjandi gagnrýni er það sem við þurfum til að bæta um betur.
 
Það er þess virði, allt þetta hark. Fullnægjan sem fylgir því fyrir ástríðufullan rithöfund að geta skrifað og ég tala nú ekki um að fá tækifæri til að fást við það á daglegum basis, er fullkomlega þess virði. Að fá að heyra að eitthvað sem þú skrifaðir skipti máli fyrir einhvern. Að eyða rólegum eftirmiðdegi á kafi í söguþræðinum sem þú ert að skapa. Það er þetta með tilganginn, að finnast maður vera að skapa eitthvað sem aðrir munu svo njóta. Það er þess virði. 
 
Ef þú hefur löngunina, ástríðuna og finnur þig með orðunum, sestu niður og byrjaðu. Sýndu öðrum það sem þú ert að gera þegar þú ert tilbúin til þess (ekki vera hrædd). 
 
steina@spegill.is
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur