Angelina Jolie -biography
16 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Angelina Jolie er bandarísk leikkona sem hefur unnið fjöldann allan af verðlaunum í gegnum tíðina fyrir leik sinn. Jolie er einnig sérstakur talsmaður mannréttinda. Hún er sérstakur sendiherra fyrir U.N. Og hún hefur margoft verið nefnd sem fallegasti núlifandi einstaklingurinn.
Angelina er einna þekktust fyrir frammistöðu sína í myndinni Girl, Interrupted, sem og fyrir ástarsamband sitt við Brad Pitt, en saman hafa þau eignast stóra fjölskyldu.
Angelina Jolie Voight fæddist fjórða júní 1975 í Los Angeles. Foreldrar hennar eru Jon Voight leikari og Marcheline Bertrand leikkona. Angelina skaust fyrst upp á stjörnuhimininn á nítjánda áratugnum. Hún byrjaði leikferil sinn ung að aldri og lærði leiklist í The Lee Strasberg Theater Institute á unglingsárunum. Seinna fór hún í New York University.
Angelina varð fljótt afar vinsæl leikkona. Hún fékk hlutverk í sjónvarpsmynd, sem byggð var á stuttri og stormasamri ævi Giu Marie Carangi, en fyrir hlutverk sitt fékk Jolie Golden Globe verðlaunin árið 1998 sem besta leikkonan.
Annað frábært og jafnframt dramatískt hlutverk var í myndinni Girl, Interrrupted (1999) en fyrir frammistöðu sína vann Jolie sín fyrstu Academy Award verðlaunin sem besta leikkonan í aukahlutverki. Síðan þá hefur hún leikið í fjöldanum öllum af góðum myndum. Ber helst að nefna; Lara Croft, þar sem hún lék FBI profiler í Taking Lives (2004), og einnig lék hún listavel í Mr. and Mrs. Smith (2005), sem og sem vandræðaeiginkonan í The Good Shepherd (2006).
Árið 2007, lék Jolie stórkostlega í Mariane Pearl, sem ófrísk ekkja á Wall Street Journal.
Angelina Jolie hefur starfað á vegum sameinuðu þjóðanna síðan árið 2001. Og árið 2005 vann hún Global Humanitarian Action Award fyrir framlag sitt til góðgerðamála, en hún hefur verið dugleg við að heimsækja munaðarleysingjahæli, víða um heim.
Angelina Jolie á tvö hjónabönd að baki. Hún giftist Jonny Lee Miller árið 1995. Þau skildu nokkrum árum síðar eða 1999. Ári seinna giftist hún Billy Bob Thornton leikara. Hjónabandið entist til ársins 2003.
Angelina Jolie ættleiddi son frá Kambódíu árið 2003 og heitir hann Maddox. Þremur árum seinna ættleiddi hún dótturina Zahara, og árið 2005, sótti Brad Pitt um að fá að ættleiða bæði börn Jolie.
Jolie og Pitt hittust við tökur á myndinni Mr. and Mrs. Smith árið 2004 og hófst ástarsamband þeirra stuttu síðar. Saman eiga þau dótturina Shiloh, en hún fæddist í Namibíu árið 2006. Jolie, Pitt, og börnin þeirra öll hafa ferðast á þennan fjarlæga stað í Afríku til að fá frið fyrir fjölmiðlum.
Móðir Jolie lést í ársbyrjun 2007, en hún hafði barist við krabbamein um árabil. Fráfallið reyndist Jolie afar erfitt. Í mars sama ár eignaðist Jolie annað barn þegar hún ættleiddi þriggja ára gamlan munaðarlausan dreng frá Víetnam, hann heitir Pax Thien.
Jolie eignast tvíbura, Knox Leon og Vivienne Marcheline í júlí árið 2008, á sjúkrahúsi í suðurhluta Frakklands. Parið seldi fyrstu myndirnar af tvíburunum til People og Hello fyrir litlar $14 milljónir. Dýrustu myndir sem nokkru sinni hafa verið teknar...og keyptar. Hvað þá seldar.
Hér að neðan má sjá stutt myndskeið af drottningunni
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





