logo

Bolla bolla bolla -uppskriftir

16 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Bolludagurinn með öllu sínu rjómaáti er handan við hornið. Mér finnst það æði, elskar bollur. Sitt sýnist hverjum, en flestir sem ég þekki eru hrifnastir af þessum klassísku vatnsdeigsbollum. Ég er ein af þeim.
 
Uppskriftirnar hér að neðan eru einfaldar í framkvæmd. Og vatnsdeigsbolludeigið, hefur aldrei klikkað.
 
 
Klassískar bolludagsbollur

200 g hveiti
125 g smjörlíki
5 tsk þurrger eða 50 g pressuger
1 msk sykur
1 egg
1 dl vatn
 
Smjörlíkið er mulið saman við hveitið og sykurinn. Gerinu blandað saman við ef um þurrger er að ræða.
 
Þeytið egg og vatn saman og vætið deigið með því.
 
Setjið með skeið á plötu og látið lyfta sér við stofuhita í hálftíma.
 
Bakið við 200°C í 10 til 15 mínútur. Fer eftir ofnum. Uppskriftin ætti að nægja í 15 til 20 bollur.
 
Borið fram með sultu og rjóma. En ekki hvað?
  
Vatnsdeigsbollur

125 g smjörlíki
2 dl vatn
125 g hveiti
3 til 4 egg
 
Smjörlíki og vatn er soðið saman og hveiti síðan hrært saman við, þar til deigið er orðið samfellt og þykkt.
 
Takið pottinn af hellunni og kælið deigið örlítið.
 
Deigið er sett í hrærivélarskál og eitt og eitt egg síðan hrært saman við.
Deigið má ekki að vera of þunnt. Gott er að nota skeið til að raða bollunum á plötuna. Passið bara að hafa nægilegt bil á milli. Deigið ætti að duga í 20 bollur minnst. 
 
Bakið bollurnar í miðjum ofni við 180°C í um það bil 20 mínútur.
 
Munið að opna ekki ofninn meðan á bakstri stendur.
 
Þær þurfa að vera vel bakaðar áður en þær eru teknar út úr ofninum því annars er hætta á að þær falli saman. Bollurnar mega heldur ekki vera of bakaðar því þá verða þær of þurrar.
 
Berið bollurnar fram með sultu og rjóma og bræðið súkkulaði og setjið ofan á.
  
Berlínarbollur

40 g smjörlíki
30 g sykur
1 egg
1 dl mjólk
2 tsk þurrger
250 g hveiti
Palmínfeiti

Hrærið smjörlíki og sykur saman í hrærivél og setjið eggið saman við.
Setjið helming af hveitinu út í deigið, ásamt mjólkinni.
 
Deigið er tekið úr hrærivélinni og afgangurinn af hveitinu hnoðaður saman við.
 
Deiginu er skipt í tvær kökur. Takið aðra og fletjið út. Flott er að nota glas til að móta kringlóttar kökur.
 
Hálf teskeið af sultu er sett á hverja köku.
 
Hinn helmingur deigsins er flattur út og skorinn á sama hátt í hringlaga kökur. Kökurnar eru svo settar saman og þá á sultan að vera á milli.
 
Límið brúnir vel saman með gaffli. Látið bollurnar lyfta sér í 10-15 mínútur.
 
Steikið eins og kleinur í heitri fitu og oftast er kökunum velt upp úr sykri á eftir. Sumir strá á þær flórsykri eða setja á þær glassúr.
 
Gleðilegan bolludag!
 
heida@spegill.is
 
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur