logo

Gluggar

16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Það fer bráðum að koma vor, látið ekki svona! Segi ég og sit krókloppin við skrifborðið suður á Spáni. Mér hitnar nú kannski ef ég fer í að þrífa gluggana snöggvast. Nei, ég efast um það. En ég mun klárlega þrífa þessar elskur þegar það fer að hlýna og sólin fer að skína. 
Ég nota alltaf gömul dagblöð og rúðusprey til að þrífa gler og spegla. Það svínvirkar. Kitschfríður Kvaran er með ráð til viðbótar. Gluggum í þau.

Þegar rúður eru þvegnar er agalega sniðugt að strjúka upp og niður að utan en til hliðanna að innanverðu. Þá er svo auðvelt að sjá hvorum megin rendurnar eru. En lífsreyndar húsmæður eins og ég skilja auðvitað aldrei eftir rendur hvort eð er...

Best er að þvo glugga úr blöndu af ediki og vatni, það minnkar rendur. Í lokin er gott að pússa létt yfir glerið með samanvöðlaðri dagblaðsörk. Dagblöð skilja ekki eftir ló á gleri og henta frábærlega á speglana líka.

Þar hafiði það...hún er sammála mér með dagblöðin! Hefurðu prófað það?

steina@spegill.is
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur