logo

Gríman 3. hluti

16 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Samband með siðblindum

Þar sem siðblinda er ólæknanleg mun hinn siðblindi endurtaka ákveðið ferli í samböndum sínum aftur og aftur. Það skiptir engu máli hvaða kona á í hlut eða hversu lengi sambandið hefur varað.
Sumir tala um þrjú stig. Dásama, vanvirða og henda, eða idealize, devalue and discard (Babiak and Hare). Þetta ferli getur tekið frá nokkrum klukkustundum upp í mörg ár. Það fer allt eftir því hvað hinn siðblindi ætlar sér með fórnarlambið.
 
Mögulega vill hann hafa grímu hins fullkomna fjölskylduföður og sækist því eftir eiginkonu til lengri tíma. Kannski er hann að leita að fjöri í nokkrar klukkustundir eða hann er að sækjast eftir spennunni sem hlýst af því að halda framhjá eða halda við gifta konu.
 
Hverju sem hann sækist eftir, eða hversu lengi það varir – breytir engu. Á endanum verður fórnalambinu kastað. Annað hvort þjónar það ekki lengur þörfum hans né tilgangi eða að hegðun hans sjálfs hefur orðið til þess að viðkomandi hörfar í burtu. Sleppur.
 
Þrátt fyrir að hinn siðblindi notfæri sér aðra þá er þetta ferli hluti af persónuleika þeirra. Það þarf ekki að vera að þetta sé útreiknað ferli hins siðblinda frá upphafi. Þó svo þetta hafi ekki verið fyrirfram ákveðið þá mun hinn siðblindi notfæra sér og mergsjúga allt úr sínum rómantísku samböndum. Þar til ekkert stendur eftir. Ekkert nema brotin sál sem hinn siðblindi hefur engin not fyrir lengur.
 
Það hefur nú þegar verið fjallað um hvernig þeir laða að sér konurnar í lífi sínu. Samt gæti sú umfjöllun verið endalaus. Þess veikara sem fórnarlambið er fyrir, þess betra. Þeir finna veiku punktana. Spyrja réttu spurningana og finna hvað hentar best til að ná takmarkinu – konunni. Hvort sem hún er nýskilin, er að ná sér eftir dauðsfall í fjölskyldunni, á í peningavandræðum – þeir finna hvað skiptir konuna mestu máli og gefa henni það.
 
Það er ekki óalgengt að í upphafi ástarsambands máli þeir sig á vegginn sem ekki verðugan einstakling fyrir þig, en eru á sama tíma þinn besti sálufélagi. Þeir fylgjast með þér og spegla sig við þig. Þykjast hafa sömu áhugamál og sömu veikleika. Þannig ná þeir tökum á innri persónu þinni, með loforðum um meiri innileika og sambandi sem er öllum öðrum samböndum sérstakari.
 
Að eilífu jafningjar. Því engin kona hefur látið þeim líða eins og þú ein getur gert.
Í ástarvímunni falla öll varúðarmerkin í skuggann, enda er sá siðblindi með eindæmum elskulegur. Sýnir fullkomna og yndislega framkomu. En þeir nenna ekki að halda þessari framkomu lengi áfram.
 
Þetta er yfirleitt kallað “brúðkaups ferli” eða “The honeymoon phase” sambandsins. Það endar þegar annaðhvort sá siðblindi finnur að þú ert gjörsamlega fönguð, eða hann fær leið á þér og leitar á önnur mið. Um leið og hann þarf ekki lengur að látast kemur hinn sanni persónuleiki í ljós.
 
En afhverju eyðir sá siðblindi öllum þessum tíma og orku í að fara í gegnum “brúðkaupsferlið”, sjarmaferlið?
 
Kannski hafa þeir gaman af því. Þeim finnst það spennandi og skemmtilegt. Það gefur þeim eitthvað. Þeir hafa gaman af eltingarleiknum og síðan – að kasta fórnarlambinu. Þeir hafa gaman af því að þykjast vera eitthvað sem þeir eru ekki. Þeir fara ekki í þetta ferli nema fá eitthvað sem þeir vilja eða þurfa. Þetta getur jafnvel verið ákveðin ástríða hjá þeim. Þú ert ástríða þeirra – núna. En ekki lengi.
 
Um leið og hinn siðblindi finnur að þú ert gjörsamlega föst í neti hans. Draumar þínir og þrár snúast um hann. Þá verður hann leiður á öllu saman og finnur aðra leið til að upplifa ánægju. Þú ert ekki lengur uppspretta ánægju hans þótt þú sért jafnvel áfram föst í netinu ef hann hefur not fyrir þig. Þú ert orðin “hlutur” sem ert nauðsynlegur til að ná næsta takmarki.
 
Á þessu stigi byrjar vanvirðingin. Þú áttar þig kannski ekki strax á henni þar sem sá siðblindi er sérfræðingur í að skammta rétt nægilegan sjarma og athygli til að halda þér á þeim stað sem hann vill að þú sért. Hann áttar sig á því að til að missa þig ekki verður hann að þykjast hafa áhuga á þér. En hann veit líka hvenær hann getur ýtt á veiku punktana. Hann mun ýta hægt og róleg, fara langt yfir mörk þín og draga þig lengra niður.
 
Vanvirðingin kemur hægt og rólega – en stöðugt. Með nokkrum munnbitum og “góðum tíma” inn á milli. Fallegum orðum kannski af og til. Bara til að halda þér góðri. Svo þú áttir þig ekki á heilbrigðri skynsemi þinni sem öskrar að það sé verið að misnota þig. Þegar hann verður verri og verri við þig er það ekki eingöngu af því hann hefur misst áhugann á þér. Hann er líka að vinna að því að þér sjálfri finnist sífellt minna til þín koma og að þú viðurkennir þar með sífellt versnandi hegðun frá honum.
 
Á þessu stigi ert þú væntanlega komin í algera afneitun. Þú heldur í drauminn um hið fullkomna samband sem þér var lofað. Þú sættir þig við sársaukann sem vex með degi hverjum, hræðsluna og efann.
 
Þú finnur rök til að afsaka hegðun hans gagnvart þér og öllum öðrum. Hann svarar þessu með því að ýta ennþá lengra. Vanvirðing í þinn garð mun aukast, ljótu orðin og slæma framkoman. Þú munt fá að finna fyrir því ef þú reynir að virða þínar eigin þarfir og lýtur ekki algerlega hans vilja.
 
En einn daginn muntu átta þig á hvað er að gerast í kringum þig. Þegar hann fer niður á næsta lága plan eða þú kemst að einni lyginni enn.
 
Þú munt sleppa afneituninni sem hefur hjálpað þér til að aðlagast í eitruðu sambandi. Hann hefur á þessum tíma eyðilagt sjálfsmat þitt svo þú spyrð ÞIG hvað þú hafir gert rangt.
 
Hafi hann haldið framhjá þér muntu kenna hinni konunni um. Hann mun ávallt firra sig allri ábyrgð og á meðan þú ert í afneitun, þá ertu sammála honum. Hafir þú hinsvegar komist að hinu sanna þá mun allt vera þér að kenna.
 
Það ert þú sem ert ekki nógu góð fyrir hann.
 
Siðblindir einstaklingar eru þekktir fyrir að setja sína eigin galla yfir á aðra. Bæði í nútíð og þátíð. Ef þeir segja að t.d. fyrrverandi konur hafi verið þeim ótrúar, þá er það örugglega á hinn veginn. Ef þeir segja að sú fyrrverandi hafi farið illa með þá á einhvern hátt, þá er það næstum víst að í rauninni fór hann illa með hana.
 
Þeir snúa öllu yfir á hinn aðilann. Sama hvað það er.
 
Ef þú ert “sloppin” þá máttu vera viss um að næsta kona í lífi hans fær að heyra um allt það sem þú gerðir honum. Sem er í raun það sem hann gerði þér.
 
Ef þér var kastað eins og rusli veltir þú kannski fyrir þér, af hverju?
 
Samband með siðblindum einstaklingi er tímabundin hryllingssaga – svikamylla. Þú sjálf varst bara spennandi meðan verið var að veiða þig í netið. Um leið og sá tími rann sitt skeið var spennan fólgin í að stjórna þér, blekkja þig, einangra þig, misnota og grafa undan sjálfstrausti þínu. Í því var spennan fólgin eftir að þú sjálf varst ekki spennandi sem slík.
 
Ekki nokkurn tíma halda að fyrsta stigið – sjarmerandi brúðkaupsstigið, komi aftur. Það mun ekki gerast.
 
Í hverju einasta kvennaathvafi muntu heyra að ofbeldi versni með tímanum, það kemur ekki til með að minnka. Þessi þörf fyrir takmarkalausa stjórn er eins og eiturlyf og það þarf alltaf að auka skammtinn. Að hafa stjórn yfir öðrum. Hvort sem það er kynferðislegs eðlis eða annars eðlis. Þetta gefur þeim siðblinda ánægju og tilgang í lífinu. Þess vegna munu þeir bara herða tökin og auka vald sitt yfir þér. Brjóta þig niður þar til þú verður veikari og veikari.
 
Það er bara ein leið. Að rísa upp og forða sér!

Fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrsta hluta þessa greinaflokks vil ég benda á að siðblinda er til hjá báðum kynjum og nær til um 1-2% mannkyns. Af þessu hlutfalli hafa mælingar sýnt fram á að 87% eru karlkyns. Þess vegna skrifa ég útfrá karlkyni.
 
Eins vil ég benda á að þetta er heimildarvinna. Ekki mín sýn, skoðun eða sjónarhorn. Þetta er sótsvartur raunveruleiki sem kemur úr smiðju sérfræðinga á þessu sviði.
 
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur