Hún iðar í stólnum -erótík
16 febrúar 2012

Hann hafði margoft farið inn til hennar þennan dag, kaffibollarnir voru orðnir ótalmargir. Það sést á henni að hún er "stopp" ...með ritstíflu kannski, því aðeins nokkur orð eru komin á tölvuskjáinn, eftir heilan dag við lyklaborðið. Hún er orðin mjög tens, sérstaklega eftir alla kaffibollana og sígarétturnar. Hún iðar í gamla skriftofustólnum sínum.
Stóllinn er gamall og hann gat auðveldlega áttað sig á í hvaða skapi hún var, einungis frá hljóðunum úr stólnum.
Öll þessi litlu ískur sögðu honum alltaf í hvað skapi eða í hvaða stöðu hún var við skrifin sín.
Þarna inni sat hún með sítt tinnusvart hár, seiðandi augnaráð og þessi háu kinnbein. Guð, við hvert tækifæri lagði hann kinnbein sín að hennar og ýtti þéttingsfast, hún ýtti á alltaf á móti.
Yndisleg tilfinning fer um allan líkama hans í hvert skipti sem þau snertast, en þessi staður er þeirra staður.
Þarna sat hún í öllu svörtu. Í svartri peysu með kraga upp að höku sem innrammaði enn frekar hennar fallega andlit.
Hringlaga op var rétt fyrir ofan brjóstin svona bara til að sýna skinnið og rugla í ímyndunarafli hans.
Hendur hennar lágu saman í kross yfir maga hennar og allir hennar tíu fingur.
Tíu fingur sem bara með snertingu veittu honum svo mikinn unað.
Svartar leðurbuxur á óendanlega löngum leggjum hennar, ákölluðu fingur hans. Fingur hans, ásamt öðru var að stirðna við tilhugsunina um að snerta hana.
Hún lyftir öðrum fætinum og leggur á vegginn. Pinnahælaskór utan um nakinn ökkla hennar.
Ekkert heldur aftur af honum lengur. Hann stendur upp, gengur þessi 2 skref til hennar.
Fyrr en varir var þessi tveggja metra maður kominn niðrá hnén fyrir framan hana.
Hann grípur um arminn á stólnum og snýr henni að sér. Grípur um hné hennar og dregur þau í sundur.
Hann tekur um báða armana og dregur hana alveg að sér.
Svipur hennar hafði ekki mikið breyst. Andlitið virkaði tens, eins og hann væri að eyða tíma hennar.
Hann grípur um hendur hennar og lætur þær á armana á stólnum. Hendur hans grípa um nakta ökkla hennar og hann rennir höndum sínum upp eftir kálfum hennar. Stoppar smá stund og gælir við hné hennar. Bara til að fá þessa tilfinningu sem ekki er hægt að lýsa.
Hann leggur lófa sína um læri hennar rétt fyrir ofan hné og rennir þeim upp að mitti. Hendur hans mætast yfir hnöppunum á buxum hennar. Hann leysir hnappana einn af öðrum. Og lítur upp til hennar. Hún er aðeins farin að brosa. Ekki með munninum reyndar en augun ljúga ekki.
Hún þrýstir höndum sínum á armana og mjaðmir hennar lyftast örlítið upp af stólnum. Hendur hans renna meðfram hliðum hennar og grípa um buxnastrenginn. Hægt rennir hann buxunum niður fyrir hné. Hún slakar á höndum sínum og nakinn rass hennar snertir stólinn.
Ó, hvað hendur hans hefðu viljað vera þarna á milli. Höfuð hans rennur milli læra hennar og pinnahælarnir læsa sér í axlir hans. Hann dregur hana aðeins nær brún stólsins.
Hún grípur um höfuð hans og dregur hann niðrá sig. Hann bítur blíðlega í lífbein hennar og það er eins og líkami hennir lifni við hægt og rólega. Hann færir sig nær sköpum hennar.
Hann leggur varir sínar á barma hennar. Líkami hennar getur ekki beðið lengur. Hann rennir tungu sinni yfir sníp hennar blíðlega. Höfuð hennar rennur aftur og augun lokast. Aftur og aftur og aftur rennir hann tungu sinni um sníp hennar og barma.
Hendur hans leita eftir höndum hennar og þegar þær mætast krækja þau fingrum sínum saman og ógurleg orka rennur um þau bæði.
Hann finnur að líkami hennar er nálægt fullnægingu. Áfram heldur hann, stunur hennar er orðnar mjög djúpar og hún finnur að hún er að koma.
Í augnablik dregur hún höfuð sitt upp og opnar augun og lítur í brúnu augu hans. Hún hallar höfði sínu aftur og lokar augunum. Hann heldur áfram að renna tungu sinnu um sköp hennar, taktfast.
Hún er alveg við að koma. Fingur hennar kreppa saman fingur hans. Líkami hennar stoppar í örstund og svo losnar um allt. Fingur hennar spennast út í loftið. Stunur hennar virðast endalausar, hún reisir höfuð sitt og horfir djúpt í augu hans.
Hann tekur um hendur hennar og leggur á armana og rennir höfði sínu undan lærum hennar.
Hún lyftir mjöðmum sínum örlítið frá stólnum og hann rennir leðurbuxunum aftur upp þessa endalausu leggi.
Við hvern hnapp sem hann lokar kyssir hann hvern af öðrum, þegar síðasti hnappurinn er lokaður lítur hann til hennar og strýkur blíðlega um kinnbein hennar.
Hún leggur höfuð sitt í lófa hans og lokar augunum. Hann stendur upp og kyssir hana á vangann áður en hann gengur fram. Hann kemur aftur skömmu síðar með heitan kaffibolla.
Kaffibollann leggur hann á borðið, kveikir í sígarettu fyrir hana. Snýr stólnum að borðinu og rennir henni að því. Kyssir hana á hitt kinnbeinið og gengur út.
Stuttu seinna heyrist langt brak í stólnum. Þetta brak þekkti hann. Þetta brak kemur bara þegar hún hallar sér að tölvunni...hún er byrjuð að skrifa aftur.
Elskhuginn
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





