Sítrónumaski fyrir feita húð
16 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Dekrum við okkur í grænu og gulu. Hérna birtum við hrikalega góðan maska, sem jafnframt er heilsusamlegur, og svo girnilegur að þig langar sem helst til að borð'ann!
Skvettu þessu í trýnið á þér ....og éttu rest!
Þessi maski er sérstaklega góður og áhrifaríkur fyrir feita húð.
Við þurfum:
1/2 gúrku, skrælaða
1 eggjahvítu
1/2 teskeið sítrónusafa
1/2 teskeið myntulauf
1 dropa af sítrónuilmolíu
Settu allt í blandarann, nema ilminn, þar til orðið mjúkt, slétt og fellt. Settu ilmolíuna saman við, ef þú kýst og blandaðu vel saman við.
Tilbúið!
Settu gott lag af maskanum á hreint andlit og háls og nuddaðu eilítið inn í húðina með mjúkum hringlaga hreyfingum.
Kveiktu á þinni uppáhaldstónlist. Njóttu þess að slaka á í tuttugu mínútur.
Hreinsaðu maskann af með volgu vatni og hreinum klút.
Settu á andlit og háls gott rakakrem.
Kíktu í spegil og sjáðu hversu falleg/ur þú ert...í framhaldi bankaðu upp á hjá okkur á www.spegill.is ...og deildu með okkur einni góðri uppskrift fyrir aðra til að njóta.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





