Saltkjöt og baunir
16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Jæja þá, nú er komið að því. Það styttist í saltkjötið og baunirnar. Þjóðlegt og gott, virkilega kraftmikið. Þetta þurfum við víkingarnir. Ekkert væl, sjóddu saltkjöt og baunir!
Kokkalandsliðið eldar íslenskt eins og kunnugt er orðið og að sjálfsögðu eru þau með saltkjötið og baunirnar á sínum stað á borðinu.
Baunasúpa með saltkjöti úr gulertum er yfirleitt byggð á söltuðum soðnum lambaframparti og íslensku grænmeti. Oftast er hún bragðbætt með lauk eins og hér er gert, en á seinni tímum er ekki óalgengt að blaðlaukur, graslaukur, sellerí og jafnvel reykt flesk/beikon sé jafnframt notað til yndisauka. Baunasúpa er tiltölulega algengur matur á Íslandi og órjúfanlega tengt sprengidegi landans.
1 kg saltkjöt
200 g gular baunir
400 g gulrófur
1 laukur
200 g gulrætur
Í eldhúsinu:
Kraftur (helst kjötkraftur)
1,2 l vatn
Best er að leggja baunirnar í bleyti í kalt vatn í um 12 klst við stofuhita.
Baunirnar eru svo skolaðar, settar í pott með vatninu ásamt kjötkrafti ef vill (má sleppa) og soðnar í um 30 mín. Best er að fleyta alla froðu af yfirborðinu.
Kjötið er skolað og þegar baunirnar byrja að mýkjast eru 2-3 kjötbitar settir út í en hinir soðnir sér til þess að súpan verði ekki of sölt. Látið sjóða í 30 mín.
Að lokum er grænmetið soðið í 20-30 mín. með baunasúpunni.
Saltkjöt og baunir, túkall!
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





