logo

Framtíđin frá ţví í gćr

17 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég sit oftast ein á kvöldin, þegar aðrir sofa. Það er sitthvað sem rímar við sófann eða stólinn, jafnvel er ég tylli mér á eldhúsbekk. Ég tengi það við vana, það sem fylgir mér öllum stundum. Nema stundum. En þá er ég annars staðar.
Tónar í lagi, stafir á bók. Kertaljós og kona með sjálfri sér; ég og mitt að fást við eitt og annað. Kannski fara í bað, ef sá er gállinn á mér. Oftar sitja og mæna á orðin sem ég reyni að setja saman, svo þau nái heildinni. Heilli sögu í bók. Kveikja mér í vindlingi, því stundum þarf ég pásu. Hlusta á texta og tengja það við mig. Svona sjálflæg, enda enginn annar nálægt. Sofandi félagsskapur, fjársjóðurinn minn. Ég er sjaldan einmana.
 
Á borðinu liggur krotið mitt og útprent af ýmsu. Pennar og blý...annar óþarfi og nauðsyn. Bara draslið mitt sem býr til vinnustað. Ég efast ekki oft, hef áhyggjur inn á milli. En það fylgir, svo ég lemji mig áfram, peppi mig upp. Þú getur þetta, gerðu betur. Er ég eins og rispuð plata? Hvaða, hvaða...þetta er heilaþvottur. Dugar ekkert minna.
 
Hvert atriði, atvik og augnablik vega þungt. Það hvernig þú notar og nýtur þess. Dagurinn í dag er framtíðin frá því í gær. Það er ekkert lítið. Mundu það og minntu þig á.
 
Stundum þarf ég augnablik til að muna það. Og minna mig á. Það er notalegt þegar mér tekst það, að tóna mig niður í akkúrat eljuna sem keyrir mig áfram. Já það var þetta og svona. Ég skil og ég skal...og ég þagga niður í skassinu sem fussar stundum á sjálfa sig.
 
Mér finnst gott að tala við þig er ég tala við mig. Og vona að þú sjáir það sama. Það er ferðalag að lenda á þessum vegi, svona hressilega krókóttum á köflum. Ekki hélstu að þetta yrði eintómur rósemdarpistill? Nei, stundum kasta ég rassinum til og sveifla hárinu aftur. Strunsa eftir stígnum á nefinu. Geri það sem mig langar. 
 
Þessi dagur er rétt að hefjast, ég verð upptekin. Við lífið. Því ég er framtíðin frá því í gær. Hvað með þig?

steina@spegill.is

 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur