Opið bréf til borgarstjóra um lögleiðingu kannabis
17 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Ég frétti af spjallborði þar sem íslenskir einstaklingar koma saman, en þeirra helsta markmið og hugsjón er að lögleiða kannabisefni. Þarna hittist fólk og viðrar sínar hugmyndir, ekki ósvipað og á bland.is. Nema að við erum að tala um "efni" sem er ólöglegt á Íslandi og vefsíðu því tengdu, sem þrífst og hefur gert um árabil. Margt skrýtið í kýrhausnum.
Með þessari birtingu er ég ekki að taka afstöðu með eða á móti, höfum það á hreinu. Ég dulbjó mig...og ferðaðist um spjallborðið. Sá sumt nokkuð áhugavert.
Birti hér á eftir bréf til Jóns Gnarr borgarstjóra frá nafnlausum aðila. Stafsetning og málfar fá að halda sér...kíktu:
Daginn bara svona kom með hugmynd að senda jón gnarr borgarstjóra eitt firir smá síðan og ég fékk svar við því. Þetta var nu ekki svarið sem ég vildi en ég ætla að posta því hér inná báðum bréfonum en mun taka ut nafn mitt og persónuupplisingar allra i bréfinu. Ég var nú ekkert að vanda mig alltof mikið i þessu þegar ég gerði brefið áhvað bara að gera tilraun. mæli með því að fleiri geri þetta og reinum að fá athygli takk fyrir.
Email borgarstjórans er borgarstjori@reykjavik.is
Bréfið sem ég sendi:
Við bijum um skilning
Kæri Jón Gnarr eg vona að þetta skeiti komist i hendur þinar og eg fai svar
til baka. Ég vil bara birja á því að seigja að mer finst þú vera að standa
þig mjög vel og vill endilega að þú haldir uppi besta flokknum til
frambúðar. En ég sendi þetta mail vegna kannabismálefna. Ég hef leingi
kynnt mer til um kannabis plöntuna og allt sem hún getur gert fyrir okkur.
Hún getur hjálpað til með nuverandi fjárhagsástands íslands og svo ekki sé
talað um alla læknismeðferðir sem hun getur hjálpað með. Ég ætla nú ekki að
fara að telja upp allt sem hun getur gert en ég vil samt endilega benda þér
á heimildarmyndina: THE UNION : sem sýnir allt sem hún hefur uppá að bjóða
sem hægt er að horfa á hér: http://www.youtube.com/watch?v=CkyUZ6AN4QY
Ég er ekki að biðja þig um stuðning en ég mundi endilega vilja fá að dreifa
upplísingum um hana i gegnum bæklinga a opinberum svæðum og leifa fólki að taka vel upplísta ákvörðun. vona að þú svarir þessu brefi og þakka fyrir
mig. Takk fyrir
Brefið sem ég fekk strax til baka fra borgarstjora :
Ágæti viðtakandi.
Skrifstofa borgarstjóra hefur móttekið tölvupóst þinn. Við munum svara þér
eins fljótt og kostur er.
The Mayor's Office has received your e-mail. We will respond as soon as
possible.
Með kveðju / Best regards,
xxxxxxxxxx
Hitt svarið sem ég fékk sent (bréf-ritari):
Tilvísun í mál: xxxxxxxxx
Sæll xxxxx.
Vísa til erindis þíns til borgarstjóra dags. xx.xx. sl. varðandi kannabis. Erindinu hefur verið komið á framfæri við borgarstjóra.
Með góðri kveðju
Á eftir koma nettar "pílur" í athugasemdakerfið sem spjallborðið býður uppá;
vill ekki vera með leiðindi eða neitt slíkt, en ég held að ef þú vilt að svona bréf sé tekið alvarlega....
þá held ég að þú þurfir að fá einhvern til að prófarkalesa þetta fyrir þig og laga stafsetninguna hjá þér til muna...
...og svo þessi;
Þegar ég sé svona stafsetningu þá hugsa ég "hálfviti" eða eitthvað slíkt svona ómeðvitað. Þú ertu ábyggilega fínn , þessvegna með lesblindu eða eitthvað slíkt en ef þú ætlar að senda bréf til borgarstjóra þarftu að láta vin fara yfir það ;)
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





