Mona með súkkulaði
17 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Á Spáni er ekki hefð fyrir páskaeggjum úr súkkulaði. Né nokkur einasti bolludagur eins og við þekkjum hann. Þess í stað borða Spánverjar sætt brauð sem kallast mona og bíta í súkkulaðistykki með.
Annað bakkelsi og sætabrauð á líka sitt pláss á páskaborðum innfæddra. Dymbilvikan er stútfull af sykri.
Hefðir fyrir sætindum í tengslum við páskahátíðina er líklega runnin úr föstu kristinna, þegar brauð og egg komu í stað kjötmetis. Okkur öllum til ánægju og yndisauka hefur hún teygt sig allt til samtímans. Fáum okkur sykursætt súkkulaði með góðri samvisku. Og bolludagsbollur með rjóma og tilheyrandi.
Nú skunda ég í bakaríið og panta monu fyrir stelpurnar mínar. Sæta þykka köku og hreint rjómasúkkulaði með. Svo er karnaval á föstudaginn...pínulítill öskudagsbragur á því þegar krakkarnir klæða sig í búninga.
Hver menning hefur sinn sjarma elskurnar.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





