Stútfull súpa
18 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég tók mig til um daginn og byrjaði að tilraunast með linsubaunir, svo skelfing næringarríkar. Ég er viss um að samkrullið af chia, linsum og öllu öðru sem ég raða hér á borð...stútfyllir okkur stelpurnar af hollustu. Við ljómum að innan sem utan. Svo er klósettpappírinn með ilmefnum. Ilmandi sálir og afturendar skottast nú um í kringum mig. En hér er súpan...þetta var útúrdúr.
Linsubaunirnar þarf að leggja í bleytir í 3 tíma áður en hafist er handa við eldamennskuna. Þá eru þær settar í vatn með krafti, út í dúndrum við grænmeti að eigin vali. Ég notaði:
gulrætur
lauk
tómat úr dós
hvítlauk
Þetta sauð ég svo saman í 30 mínútur undir loki. Á meðan útbjó ég kryddblöndu:
2 msk smjör
kúmen
túrmerik (eða karrý)
kóríander
ferskan chili eitt stykki fræhreinsað og saxað
Steikti þetta saman í mínútu...þvílíkur ilmur. Þarna var klárlega kominn tími á hálft glas af kældu hvítu víni til að æsa upp andrúmsloftið. Láttu það eftir þér!
Nú tók ég linsubauna og grænmetissúpuna og maukaði í blandara. Vel og lengi. Skellti svo í pottinn aftur, bætti kryddinu við og blöndu af mjólk og rjóma, sauð saman í 10 mínútur og skar niður brauð á meðan.
Súpuna má spæsa meira þegar hún er komin í skálina, fyrir þá sem vilja. Annað hvort með tabasco eða chili sultunni góðu (sem ég gerði). Svo er sletta af sýrðum rjóma eða hreinni jógúrt algjör nauðsyn, kannski rifinn ostur ef þú ert þannig stemmd.
Máltíðin er stútfull...algjörlega.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





