logo

Uppskriftir án sykurs, hveitis og sterkju

18 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Það eru ýmsir sem forðast sykur, hveiti og sterkju af margs konar ástæðum. Auðvitað getur verið erfitt að gramsa eftir uppskriftum sem ekki innihalda einmitt þetta. Erla er okkur hér innan handar. Kíktu á þetta...
 
 
 
 
 
Bolludagsbolla með vanilluskyrsrjóma

10 g smjör
40 g vatn
 
Soðið saman
 
50 g soyamjöli bætt í og hrært rösklega á meðan að potturinn stendur á heitri hellunni.
 
Deigið kælt í nokkrar mínútur.
 
1 egg
1/4 tsk matarsódi
-bætt saman við og hrært rösklega.
 
Sett með skeið á bökunarpappír á plötu, bakað við 180°C í 15 mínútur.
 
Vanilluskyrsrjómi

40 g skyr
5 g smjör
1 tsk xylitol
2 tsk vanillusýróp
-hrært vel saman
 
Morgunverðar möffins
 
1 egg (60 g)
60 g soyamjöl
2 msk xylitol
fljótandi sætuefni
1/2 teskeið natron
kanill
mulið engifer
smá salt
smá múskat
smá negull
120 g hindber
 
Byrja á því að þeyta saman egg og xylitol þangað til það verður ljóst og fluffy.
Blanda þurrefnum vel saman í aðra skál og hræra þau svo út í eggið og xylitolið.
Setja svo smá slettu í fjögur muffinsform. Þar ofan á fer vel af hindberjum, og restin af deiginu sett yfir.
 
Bakað í ofni við 175°C í ca 30 mín.
 
Þegar þær eru tilbúnar er tilvalið að setja afganginn af hindberjunum ofan á hverja köku. Þetta er uppskrift fyrir fjórar stórar muffins.
 
Hveitikímspizza
 
30 g hveitikím
10 g soyamjöl
matarsódi (rétt framan af hnífsoddi)
pizzakrydd eða italian seasoning ca 2 msk
1 tsk reykt paprikukrydd (má sleppa)
smá salt
 
Þynnt með vatni þangað til þetta er ca eins og hafragrautur. Dreifa úr deiginu á bökunarpappír og baka í 30 mínútur.
 
Setja sykurlausa pizzasósu, pepperoni og ost ofan á... eða bara það sem þig langar í þann daginn.
 
Heilsukveðjur E.B.I.E
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur