Allt í steik? Holl sunnudagssteik
19 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Nú skulum við elda eitthvað hollt og gott fyrir fjölskylduna. Eldum blóðrauða steik, án þess að borða kjöt.
Allt í lagi, kannski ekki blóðrauða...lokaðu bara augunum...hugurinn er svo magnaður. Þessi uppskrift klikkar ekki, safarík og einstaklega bragðgóð.
2 stk smátt skorin laukur
2 stk kúrbítur smátt skorin
200 g vel muldnar heslihnetur (ristaðar)
200 g möndlur (ristaðar)
100-200 g haframjöl (grófir hafrar -binda steikina saman)
2 msk turmerik
1 dós af góðri tómatsósu
Olía -helst lífræn
2 tsk cayennepipar, magnið fer eftir því hversu sterka steik þú vilt
Salt og pipar eftir þörfum
Kryddin eru sett saman við olíuna ásamt lauknum og leyft að malla þar til að laukurinn er orðin mjúkur.
Kúrbíturinn er settur saman við og haldið áfram að steikja við lágan hita.
Gott að vera búin að rista hneturnar í ofninum áður. Þær eru settar í blandarann og muldnar eftir smekk. Næst er blandað út í pottinn haframjöli og tómatsósu.
Hrærið vel. Settu meira haframjöl saman við, ef þú vilt steikina þéttari/þykkari.
Bakið að lokum steikina í kökuformi. Best er að setja smjörpappír undir og þjappa síðan deiginu vel ofan í formið. Bakist við 160°í 45 mín. Eða þar til að steikin er orðin gullinbrún og þétt.
Svo treysti ég því bara að þú sjáir um að velja meðlæti sem hentar þér og þínum.
Verðu þér/ykkur að góðu.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





